Page 1 of 1
BSK í SSK

Posted:
Wed 28. May 2008 13:48
by Zed III
sælir félagar,
Ég hef verið að lesa um breytingar sem setja bsk í staðinn fyris ssk hér á vefnum en ég er að skoða með að fara í hina áttina, þ.e. setja sjálfskiptinu í staðinn fyrir beinskiptingu. Er einhver sem hefur reynt þetta og vill segja frá ?

Posted:
Wed 28. May 2008 18:14
by Axel Jóhann
Í hvernig bíl er þetta og afhverju?


Posted:
Wed 28. May 2008 19:35
by Zed III
þetta er í Z3 og ástæðan er að þetta fylgir vél sem ég er að gæla við að setja í bílinn (þarf að skipta um skiptingu ef ég set þessa vél í bílinn).
Ég er þó nokkuð óöruggur á þessu plani og það læðist að mér grunur að ég muni sjá eftir þessu.
bmw

Posted:
Wed 28. May 2008 19:42
by Birgir Sig
þarftu þá ekki að fara að græja einhvað i rafmagninu upp á að vélin fari ekki i gang nema billinn se í park,, en ég mundi ekki þurfa að hugsa mig um þettta vesen eða nýjan kassa
hafa bara bsk

Posted:
Wed 28. May 2008 19:57
by E55FFFan
það er líka betra að selja svona bíl bsk held ég

Posted:
Wed 28. May 2008 20:35
by Zed III
ég hafði ekki hugsað um rafmagnið, þetta vindur bara uppá sig.
Ég held ég haldi mig þá bara við beinskiptinguna, spurning um að finna bsk gírkassa sem passar við nýju vélina.
takk fyrir kemmentin

Posted:
Wed 28. May 2008 20:38
by totihs
lágmark að segja aðeins frá plönunum
Hvernig vél o.s.frv.

Posted:
Wed 28. May 2008 21:29
by Zed III
tek það til mín,
núverandi vél er 1.8 L M43B18 með ónýtu heddi og sú nýja er úr 525 (veit lítið meira um hana).

Posted:
Wed 28. May 2008 21:31
by Axel Jóhann
Góð skipti. Reddaðu þér bara BSK kassa á m50 vélina( vona ég þín vegna að þetta sé m50)

Posted:
Wed 28. May 2008 21:58
by Zed III
ekki viss um hvort þetta sé m50 eða eitthvað annað (er byrjandi í þessu og er ekki búinn að læra mikið inn á bmw út fyrir minn bíl).
Það er freistandi að fara úr 115 hö upp í tæplega 200.
hefst þá leitin að kassa..

Posted:
Wed 28. May 2008 23:03
by Axel Jóhann
DrWho wrote:ekki viss um hvort þetta sé m50 eða eitthvað annað (er byrjandi í þessu og er ekki búinn að læra mikið inn á bmw út fyrir minn bíl).
Það er freistandi að fara úr 115 hö upp í tæplega 200.
hefst þá leitin að kassa..
Þetta er þá M50 vél, úr hvaða árgerð af 525 kemur hún?

Posted:
Thu 29. May 2008 00:16
by saemi
Bjarki hérna á spjallinu á kassa.