bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Dekk á felgur - Ykkar mat..
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=29350
Page 1 of 2

Author:  Rooy [ Thu 08. May 2008 15:05 ]
Post subject:  Dekk á felgur - Ykkar mat..

Sælir strákar..

Vantar svör í flýti!

Kemst 255 breidd á dekki á 8" felgu eða er það algjört rugl?

Sá á einhverju forum-i að einhver var að rúlla þetta og mjög sáttur..

You could probably go with a 245/40 size or even a 255/35 size. I know these will fit on a 8" rim. I have 255/35 on my 18's.

Author:  Aron Fridrik [ Thu 08. May 2008 15:09 ]
Post subject: 

225 er 8 tommur :?

Author:  Rooy [ Thu 08. May 2008 15:12 ]
Post subject: 

Jebb, það er satt enda er allt sem bendir til að þetta sé of breið dekk fyrir þessar felgur..

Jaa, eða flest öllu heldur því hér sést svo að menn hafa verið að prófa þetta og virðist virka:
http://forum.e46fanatics.com/showthread.php?t=552712

Þannig ég er á báðum áttum hvað ég á að gera - Ég á ný Bridgestone Potenza 255 dekk og það væri mikið vesen að verða mér út um alveg eins dekk með annarri breidd með skömmum fyrirvara..

Var bara spá hvort ég kæmist upp með þetta..

Author:  Rooy [ Thu 08. May 2008 15:39 ]
Post subject: 

Nú er ég að reyna réttlæta e-ð fyrir mér því ég er búinn að finna fleiri sem hafa verið að nota 255 á 8" án vandræða.. :lol:

http://www.ls1.com.au/forum/showthread.php?t=51774

En samt, skíthræddur..

Author:  arnibjorn [ Thu 08. May 2008 15:45 ]
Post subject: 

Ég er með 195 á 8" :lol:

255 hlýtur að vera bara allt of breitt? :o

Author:  Rooy [ Thu 08. May 2008 15:48 ]
Post subject: 

Já líklega ..

Þetta fékk ég frá Bílabúð Benna:

195/40R16 80V RD 246170 6.5-7.0-7.5

Þannig 195 hljóta að vera ansi vel strech hjá þér ekki satt? :)

Langar ógurlega að prófa þetta samt fyrst að öðrum hefur tekist það - Flest bendir þó til þess að ég geti betur sleppt því..

Author:  DABBI SIG [ Thu 08. May 2008 15:49 ]
Post subject: 

Ég var soldið í sömu pælingum, en það var hinsvegar bara að aftan...

Ég er ekki profesional í dekkjavali en ég myndi held ég ekki vilja hafa bíl á 8" felgum á 255 dekkjum að framan... hinsvegar veit ég til þess að bílar með staggered felguuppsetningu, 8" og 8,5" að aftan hafa verið mjög fínir með þessi 255 að aftan....
ég myndi segja að 255 að framan væri of mikið fyrir 8" en sleppi að aftan...

En það er mitt álit ég vona að ég sé ekki búnað eyðileggja réttlætinguna þína fyrir sjálfum þér, er ekki bara málið að prufa þetta... :? :wink:

Author:  Rooy [ Thu 08. May 2008 15:59 ]
Post subject: 

Hehe, er með 8" felgur allan hringinn en með 225 að framan og hafði hugsað mér 255 að aftan þannig þú ert bara ýta undir að ég prófi þetta gamli.. ;)

Author:  doddi1 [ Thu 08. May 2008 17:10 ]
Post subject: 

DABBI SIG wrote:
Ég var soldið í sömu pælingum, en það var hinsvegar bara að aftan...

Ég er ekki profesional í dekkjavali en ég myndi held ég ekki vilja hafa bíl á 8" felgum á 255 dekkjum að framan... hinsvegar veit ég til þess að bílar með staggered felguuppsetningu, 8" og 8,5" að aftan hafa verið mjög fínir með þessi 255 að aftan....
ég myndi segja að 255 að framan væri of mikið fyrir 8" en sleppi að aftan...

En það er mitt álit ég vona að ég sé ekki búnað eyðileggja réttlætinguna þína fyrir sjálfum þér, er ekki bara málið að prufa þetta... :? :wink:


ég er með 245 að aftan á 8,5" felgu... það gæti ekki passað betur, svo hinsvegar er ég með 225 að framan á sömu breidd :lol: pínu stretch en það virkar

Author:  Benzari [ Thu 08. May 2008 17:34 ]
Post subject: 

255 breidd á 8" felgu er ömurlegt í akstri !

Author:  Rooy [ Fri 09. May 2008 00:38 ]
Post subject: 

Fór með felgu og annað 255 dekkið og fékk gæja hjá hjólbarðahöllinni til að máta saman .. Hann var ekki trúaður á þetta fyrst en fannst svo bara þetta eiga geta virkað ágætlega þegar hann bar saman og hvatti mig bara til að gera þetta og sjá hvernig þetta kemur út.. :)

Hélt að Bridgestone ætti að vera frekar breitt í dekkjastærðum frekar en hitt en hann vildi meina ekki og sagði þetta vel eiga geta lukkast .. Skilar þessu af sér í fyrramálið ..

Nú krossa ég bara putta.. ;)

Author:  JonHrafn [ Fri 09. May 2008 07:22 ]
Post subject: 

Ég sem var eitthvað að pæla hvort 255 væri mögulegt á 8,5" .... Annars minnir mig að 235 sé maxið á 8"

Author:  Rooy [ Fri 09. May 2008 10:14 ]
Post subject: 

Jæja, þetta er komið undir..

Felgan er vægast sagt vel varin fyrir hnjaski! :lol:

En þetta er allt í lagi í útliti þannig séð og ekkert vesen að keyra bílinn so far ..

Maður leggur á sig ýmislegt þegar maður kemst í vönduð dekk á frábæru verði.. ;)

Hendi inn mynd af þessu fljótlega ef einhver þarna úti sé í svipuðum hugleiðingum og ég ..

Jón Hrafn:

245 er uppgefið max fyrir 8" ef e-ð er að marka þennan lista fyri Toyo dekk:

http://marktg.toyotires.com/file/18966.pdf

Author:  Rooy [ Sat 10. May 2008 18:49 ]
Post subject: 

Image
Image

Mér finnst þetta koma ágætlega út..

225/40/R18 að framan..
255/35/R18 að aftan..

Allt 8" breiðar felgur..

Author:  DABBI SIG [ Sat 10. May 2008 19:13 ]
Post subject: 

Þetta er ekkert hræðilegt,
hef séð það verra, en þú hefur hætt við að setja þetta alveg hringinn eða hvað?
Hvernig er hann í akstri?, rásar??

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/