bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

bmw 523 rúðuþurku vesen
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=29303
Page 1 of 1

Author:  523je [ Tue 06. May 2008 19:05 ]
Post subject:  bmw 523 rúðuþurku vesen

svo er mál með vexti að annar rúðu þurku armurinn fer ekkiert upp en hinn virkar fínt verst að hann er farþega meiginn. hvað hefur bara eitthver armur dottið ú sambandi eða hvernig lagar maður svona vesen og lika hvar fær maður draslið sem heldur rúðu þurku blaðinu braut það í drasl þegar ég var að reyna að laga etta

Author:  Höfuðpaurinn [ Wed 07. May 2008 08:55 ]
Post subject: 

það er nú eitt og annað sem getur verið að;

* róin sem heldur rúðuþurrkuarminum, gæti hafa losnað, þannig að armurinn helst ekki þétt við og hreyfist þar af leiðandi ekki með.

* rúðuþurrkubraketið (ef þetta er eins og í þeim bílum sem ég hef lagað svona) getur verið brotið, þ.e. armur sem sér um að snúa draslinu sem rúðuþurrkuarmurinn festist á.

færðu ekki draslið sem heldur blaðinu bara með nýju blaði? annars segi ég b&l/tb.

Author:  guðni H [ Wed 07. May 2008 18:51 ]
Post subject: 

lenti í því sama með min bíl og þá var boltin sem heldur rúðuþurkuni orðin laus svo gæti verið að tenurnar (högin) eru bara orðin skemd það var komið langt á leið með það hjá mér en þá herti ég bara helvíti vel

Author:  Alpina [ Wed 07. May 2008 19:00 ]
Post subject: 

guðni H wrote:
lenti í því sama með min bíl og þá var boltin sem heldur rúðuþurkuni orðin laus svo gæti verið að tenurnar (högin) eru bara orðin skemd það var komið langt á leið með það hjá mér en þá herti ég bara helvíti vel



................ K ....................

Author:  523je [ Wed 07. May 2008 20:47 ]
Post subject: 

takk fyrir thetta eg tekk a essu

Author:  slapi [ Wed 07. May 2008 21:25 ]
Post subject: 

Ef að róin á rúðuþurrkumótornum væri orðin laus ætti hvorug þurrkan að virka. Líklegasta skýringin er því að spindlarnir í brakketinu séu orðnir slitnir og sá sem hreyfir bísltjórameginn sé búinn að hoppa uppúr.
Síðan er nátturulega til einfaldari skýring , þurrkuarmurinn v/m sé bara laus og snúist því ekki með h/þurrkunni.

Author:  Gunnar Hnefill [ Fri 09. May 2008 05:43 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
guðni H wrote:
lenti í því sama með min bíl og þá var boltin sem heldur rúðuþurkuni orðin laus svo gæti verið að tenurnar (högin) eru bara orðin skemd það var komið langt á leið með það hjá mér en þá herti ég bara helvíti vel



................ K ....................
:lol:

Author:  poco [ Fri 09. May 2008 15:05 ]
Post subject: 

Kom líka fyrir hjá mér. Ég er ekki með nógu tæknilegan orðaforða en here goes... Á arminum var "bolti" sem sat ofan í "hettu". Þetta var orðið slitið svo boltinn poppaði úr og armurinn varð óvirkur.

Hjá mér var tvennt að gera. Kaupa nýtt braket 40-50k eða bora í gegnum boltann og hettuna, skítmixa þetta svo með skinnum, ró og koparfeiti.
Ég gerði það síðarnefnda fyrir um 2 árum og þetta virkar fínt enn.

Author:  x5power [ Sun 11. May 2008 12:11 ]
Post subject: 

taka vinstri frjokornasiuhus ur, tha kemur tetta i ljos,eg giska a ad litli armurinn se farinn ur sambandi,alltaf ad gerast.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/