Page 1 of 1

Hljóð í sjálfskiptingu á e34

PostPosted: Mon 05. May 2008 22:22
by Ásgeir
Ég fattaði áðan að hljóð sem ég er búinn að vera að heyra kemur úr
gírkassanum, eða allavega nálægt honum. Ég heyri hljóðið mjög vel ef ég
beygi mig niður hjá gírstönginni og er á ferð. Ég hélt að hljóðið væri í
afturhjólinu af því ég slædaði á kant um daginn en svo virðist ekki vera.
Þetta er eins og járn í járn en samt ekki stanslaust, tikkar svona
nokkurnveginn en samt lengri tikk en í klukku. Þetta heyrist ekki jafn vel
þegar ég bakka eða eiginlega ekki neitt. Mér líður allavega illa að keyra bílinn
svona og ætla aðeins að hvíla hann þangað til ég veit nokkurnveginn hvað
þetta er. Ég vona svo innilega að þetta sé ekki inní kassanum sjálfum en
hvað haldið þið?

PostPosted: Mon 05. May 2008 22:26
by IngóJP
Kannski aulalegt en geturu ekki hafa rifið Guibo púðan eða upphengjan farin?

http://www.realoem.com/bmw/diagrams/m/d/0.png


numer 2 er púðin [/img]

PostPosted: Mon 05. May 2008 22:28
by Ásgeir
Ohh, linkurinn virkaði ekki..

PostPosted: Mon 05. May 2008 22:29
by IngóJP
klikkaðu bara á hann þá sérðu þetta

http://www.realoem.com/bmw/diagrams/m/b/3.png

PostPosted: Mon 05. May 2008 22:35
by Ásgeir
Ertu þá semsagt að tala um þennan púða? Ég hef séð svona púða þegar þeir eru rifnir en mér finnst þetta ekki hljóma svoleiðis, en ég tjékka samt á þessu. Takk fyrir :)
Image

PostPosted: Tue 06. May 2008 00:31
by birkire
Er ekki bara guibo á bsk. bílum ?
Annars er kannski vert að tjékka á olíunni á skiptingunni og kannski skipta um með nýrri síu ef hún er ljót.

PostPosted: Tue 06. May 2008 01:25
by ömmudriver
Spurning um að taka hamarinn frá dvergnum...............................

PostPosted: Tue 06. May 2008 07:47
by Ásgeir
birkire wrote:Er ekki bara guibo á bsk. bílum ?
Annars er kannski vert að tjékka á olíunni á skiptingunni og kannski skipta um með nýrri síu ef hún er ljót.


Já ég ætlaði einmitt að gera það en er eitthvað dipstick fyrir skiptinguna á þessum bíl? :?
Ég leitaði og leitaði en fann ekkert...


ömmudriver wrote:Spurning um að taka hamarinn frá dvergnum...............................


Hvað áttu við?

PostPosted: Tue 06. May 2008 07:59
by birkire
Það hlýtur að vera kvarði þarna einhversstaðar, tók mig smá tíma að finn'ann fyrst hjá mér líka :P
Image
Sérð hann þarna

PostPosted: Tue 06. May 2008 12:18
by Lindemann
hausinn á kvarðanum er svartur og sléttur að ofan svo hann sést illa, en hann er þarna.

PostPosted: Tue 06. May 2008 21:10
by Ásgeir
Ok takk :)

PostPosted: Thu 08. May 2008 19:30
by Ásgeir
Gæti verið að bíllinn minn sé ekki með dipsticki?

http://www.bmwe34.net/e34main/Maintenan ... n_main.htm

PostPosted: Thu 08. May 2008 22:24
by birkire
Gæti vel verið, veit að A5S 560Z skiptingin sem var notuð á m60 vélarnar var ekki með dipsticki. Þá er bara að finna fill pluggið á skiptingunni og tjékka á þessu sjálfur.