Page 1 of 2

Hvarfakútur nauðsin?

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 04:55
by oddur11
mer var sagt að ef eg myndi rifa hvarfarkútinn undan myndi eg fá hestafla aukninu hversu mikla? og hann yrði skemtilegri i keyrslu?

eru margir sem að gera þetta eða er þetta bara eithva sem um er talað?
fær marr skoðun á bila með enga hvarfakúta??
(ég er fá fróður enn vill læra) :wink:

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 08:20
by einarornth
Er það ekki nauðsynlegt þegar bílinn er framleiddur eftir ákveðið ár? Minnir að það sé eitthvað þannig, man samt ekki hver mörkin eru.

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 08:27
by birkire
Fyrst þinn er 93 árgerð þá sleppur hann, það eru bílar eftir 95 minnir mig sem þurfa að hafa hvarfa. Hugsa að þú græðir engin massíf hestöfl, gæti frískað upp á hljóðið.

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 10:39
by Svessi
Eins og birkire segir þá er það miðað við bíla smiðaðir ´95.
Er samt ekki alveg klár á því hvort bílar sem eru akkurat ´95 hvort þeir sleppi eða hvort þeir verða að vera með hvarfakútinn.

Allavega, jú þú græðir nokkur hp, misjafnt eftir bílum.
En oft á tíðum nærðu líka smá bensínsparnaði, en það fer líka eftir því hvernig þú keyrir bílinn.

T.d. ég átti einu sinni ´91 BMW 518i og þar átti ég að græða einhver 2-3 hp við það að taka hvarfann. Eyðslan fór niður um 1 líter á 100.

Honda CRX VT ´91 með 1.6 V-tec var talað um að það væri einhver 7-8 hp. Ég fékk þennann bíl á sínum tíma með pústi fyrir 1.4 civic og engum hvarfakút og hann var ekki að eyða nema um 12 lítrum á 100 í botnkeyrslu þannig að ég lítið að spá í bensínsparnaði á honum.
En ég get alveg sagt að það var nokkuð mikill munur á því að fara úr 1,5" civic 1.4 pústi yfir í 2,25" opið með remus enda.

Er að pæla í með BMW 535iA ´89 með M30B35 vél hvort ég eigi ekki að láta taka hvarfann, ég var að lesa á netinu að á honum gæti maður grætt allt að 10 hp á því.

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 10:43
by gunnar
Er ekki líklegra að bílar verði sneggri á snúning og togi örlítið meira (almennt frískari) heldur en að fara telja þetta í hestöflum. Ég held að þetta sé rosalega bílabundið, fer eftir því í hvaða ástandi hvarfinn er og svo framvegis.

Eyðslan fer jú sjálfsagt eitthvað niður á við, þar sem bíllinn á auðveldara með að blása út.

Þetta er alla vega á mod listanum hjá mér í sumar.

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 16:52
by FinnurKarls
já hef oft verið að spá hvort að það sé ekki hægt að mixxa eitthvað dæmi til þess að maður fái ekki þetta vibba hljóð?? finnst vera alveg nóg hljóð í honum fyrir

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 17:24
by gstuning
FinnurKarls wrote:já hef oft verið að spá hvort að það sé ekki hægt að mixxa eitthvað dæmi til þess að maður fái ekki þetta vibba hljóð?? finnst vera alveg nóg hljóð í honum fyrir


setur RÖR enn tæmir ekki kútinn,
að tæma hvarfann er bara það fáránlegast sem maður gerir,
og það hjálpar engu.

gunnar wrote:Er ekki líklegra að bílar verði sneggri á snúning og togi örlítið meira (almennt frískari) heldur en að fara telja þetta í hestöflum. Ég held að þetta sé rosalega bílabundið, fer eftir því í hvaða ástandi hvarfinn er og svo framvegis.

Eyðslan fer jú sjálfsagt eitthvað niður á við, þar sem bíllinn á auðveldara með að blása út.

Þetta er alla vega á mod listanum hjá mér í sumar.


togi betra = meiri hö við þann snúning.
þar sem að tog er hluti af HÖ reikniformúlunni þá þýðir það að aukið tog er aukið HÖ.

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 17:35
by gunnar
Þar höfum við það :wink:

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 17:43
by Kristjan
Flækjur + mixaður hvarfi eins og GSTuning talar um/6 cyl bmw mótor = æðislegt sánd

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 17:51
by Saxi
Hvernig færi með súrefnisskynjarana ef ég færi út í þetta á M50?

Svona svo ég steli þræðinum aðeins.

Kveðja

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 17:55
by ///M
Saxi wrote:Hvernig færi með súrefnisskynjarana ef ég færi út í þetta á M50?

Svona svo ég steli þræðinum aðeins.

Kveðja


hann hefur það bara áfram gott á sínum stað :)

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 17:58
by Saxi
///M wrote:
Saxi wrote:Hvernig færi með súrefnisskynjarana ef ég færi út í þetta á M50?

Svona svo ég steli þræðinum aðeins.

Kveðja


hann hefur það bara áfram gott á sínum stað :)


hehe ok, takk fyrir það, mig minnti endilega að þetta væri allt í einum hrærigraut þarna.

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 19:02
by oddur11
takk stákar þetta var svona næstum allt sem eg þurfti að vita...
þá er þa bara að fá bilinn i gang og rifa kútana undan :D

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 19:47
by Svessi
Í sambandi við súrefnisskynjarann, ef hann er neðst á flækjunum, fyrir hvarfakútinn þá skylst mér að maður þurfi ekki að böggast neitt með það.
Hinsvegar ef súrefnisskynjarinn er í hvarfakútnum þá þarf eitthvað að mixa það, því miður get ég ekki svarað hvernig á að mixa það því að sem betur fer hef ég ekki ennþá þurft að spá í það.
- Allavega hjá mér í 535 og 735 báðir með M30B35 þá er súrefnisskynjarinn fyrir framan hvarfakútinn þannig að ég slepp við allt súrefnisskynjara mix vesen.

PostPosted: Thu 17. Apr 2008 20:15
by slapi
Svessi wrote:Í sambandi við súrefnisskynjarann, ef hann er neðst á flækjunum, fyrir hvarfakútinn þá skylst mér að maður þurfi ekki að böggast neitt með það.
Hinsvegar ef súrefnisskynjarinn er í hvarfakútnum þá þarf eitthvað að mixa það, því miður get ég ekki svarað hvernig á að mixa það því að sem betur fer hef ég ekki ennþá þurft að spá í það.
- Allavega hjá mér í 535 og 735 báðir með M30B35 þá er súrefnisskynjarinn fyrir framan hvarfakútinn þannig að ég slepp við allt súrefnisskynjara mix vesen.



Þetta fer rosalega eftir árgerðum , á einhverjum ákveðnum punkti eru súrefnisskynjarar fyrir framan og aftan eða í hvarfakútnum.
Þegar súrefnisskynjarinn er inní eða fyrir aftan kút þarf að blekkja hann svo að hann haldi að kúturinn sé enn til staðar. Venjulegur Zirconia skynjari vinnur á sviðinu 0.1V-0.9V og aftari skynjarinn er venjulega með stöðuga spennu á 0.45-0.6V ef að hvarfinn og skynjarinn virka rétt , persónulega finnst mér það misjafnt eftir bílum.


til eru blöffarar sem fara inn á signalvírinn og platar þarafleiðandi tölvuna.