bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Skipta um aðaljósalampa https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=28704 |
Page 1 of 2 |
Author: | Frikki [ Thu 10. Apr 2008 20:28 ] |
Post subject: | Skipta um aðaljósalampa |
Aðalljósalamparnir á bílnum eru orðnir að fiskabúri basicly! Hitasprungnir, vatnsdropar svona 60% og 40% móða. Á báðum lömpum. Er að fara með hann í B&L í byrjun maí en er mikið mál að taka lampana úr og þurrka þá amk þangað til? Ef það rignir ekki þá ætti þetta að vera í lagi býst ég við.. Með bestu kveðju! Og já þetta er E90. |
Author: | Angelic0- [ Thu 10. Apr 2008 20:29 ] |
Post subject: | |
Slappt á nýjum bíl ![]() |
Author: | Frikki [ Thu 10. Apr 2008 20:53 ] |
Post subject: | |
ÖMURLEEEEGGT! Þú myndir öskra ef þú sæjir myndir af þessu ![]() Hélt að BMW væri betri en þetta... |
Author: | Angelic0- [ Thu 10. Apr 2008 20:54 ] |
Post subject: | |
Frikki wrote: ÖMURLEEEEGGT!
Þú myndir öskra ef þú sæjir myndir af þessu ![]() Hélt að BMW væri betri en þetta... BMW er betri en þetta.... þetta er eitthvað bigtime klúður... |
Author: | Frikki [ Thu 10. Apr 2008 20:59 ] |
Post subject: | |
Hef líka heyrt að þetta sé eitthvað vesen á E90... Finnst þetta alveg stórkostlega glatað. En er ekki séns að þurrka þetta? |
Author: | ömmudriver [ Thu 10. Apr 2008 21:08 ] |
Post subject: | |
Er þetta ekki bara galli eða ábyrgðarmál ![]() |
Author: | bjahja [ Thu 10. Apr 2008 21:09 ] |
Post subject: | |
ömmudriver wrote: Er þetta ekki bara galli eða ábyrgðarmál
![]() Maður hefði haldið það, ertu búinn að tala við B&L |
Author: | Frikki [ Thu 10. Apr 2008 21:11 ] |
Post subject: | |
Þeir pöntuðu eitt ljós og það var í ábyrgð.. Bíllinn samt ný dottinn úr ábyrgð (2005 módel) Þannig ég veit ekki hvað þeir segja með hitt... |
Author: | ömmudriver [ Thu 10. Apr 2008 21:13 ] |
Post subject: | |
Frikki wrote: Þeir pöntuðu eitt ljós og það var í ábyrgð..
Bíllinn samt ný dottinn úr ábyrgð (2005 módel) Þannig ég veit ekki hvað þeir segja með hitt... Ég myndi ekki sætta mig við annað en að B&L myndi bæta þér hitt ljósið líka ! |
Author: | Frikki [ Thu 10. Apr 2008 21:22 ] |
Post subject: | |
Einmitt. Annað væri rugl.. Viljiði sjá myndir eða? Þetta er glatað. ![]() |
Author: | Danni [ Thu 10. Apr 2008 21:31 ] |
Post subject: | |
Já sýndu okkur myndir! Ég er einmitt í svipuðum vandræðum með annað OEM framljósið á E39 bílnum hjá mér. Þarf að fara að taka ljósið úr og láta það liggja inní skúr í hita í einhverja daga. |
Author: | Frikki [ Sat 26. Apr 2008 21:00 ] |
Post subject: | |
Vinstra: ![]() Hægra: ![]() Betra er seint en aldrei ![]() |
Author: | BMW_Owner [ Sat 26. Apr 2008 21:47 ] |
Post subject: | |
þetta er svo ljótt á nýjum bíl að það liggur við að það sé betra að teipa hagkaupspoka yfir ljósin ![]() |
Author: | Frikki [ Wed 24. Sep 2008 13:26 ] |
Post subject: | |
Jæja smá update.. Ég pantaði tíma fyrir 2 mán. og bað þá um að skipta um bæði ljósin í ábyrgð, þeir féllust á það og ég mætti með bílinn á verkstæði. Tveimur dögum seinna sæki ég bílinn og heyrðu viti menn, þeir skiptu bara um hægra ljósið!! Þvílíkt rugl. Svo er ég búinn að vera berjast við að fá hitt ljósið sett í bílinn og í ábyrgð, bíllinn er 2005 og þeir segja að þetta sé ekki ábyrgð þótt að hitt hafi verið pantað þegar bíllinn var í ábyrgð ![]() Jæja kem því svo í gegn að fá hitt ljósið pantað þegar ég fer með bílinn í smur. Ég fæ tíma sem átti að vera í dag eða á morgun. Í fyrradag hringir kona í mig frá "þjónustu"verkstæðinu og segir að ljósið mitt hafi verið frátekið á annan bíl! Ég þurfi því að fá nýjan tíma þegar ljósið mitt er komið. Ég hringi í verkstæðið og samtalið er einhvern veginn á þessa leið: "uuhm ljósið er ekki komið" "ahh jú heyrðu ljósið er komið og frátekið" frátekið á minn bíl?? "nee heyrðu það er merkt við annan bíl..." okey er ljósið mitt komið ? "bíddu aðeins uuhhm" "já heyrðu ljósið þitt er komið" og frátekið fyrir mig? "uuhm jááá, bíddu aðeins" "já heyrðu þetta er komið" hvenær á ég tíma? "uhmm sagðiru ekki 29. sept?" uu jú en ég vill vera viss "jáá heyrðu, hmmm, gef þér samband á verkstæði..." "Verslun varahlutir góðan dag" ég átti að fá samband við verkstæði "ehmm hmm ég svara fyrir bæði !" já okey, hvenær á ég tíma? "hmm jáá heyrðu bíddu aðeins" "átt tíma 29. til að skipta um aðalljós" ok flott er "heyrðu bíddu aðeins ljósið er ekki komið" whaat hann var að segja að ljósið væri tilbúið... "já heyrðu, jú ok þetta er komið, mættu kl 8 29. sept"... ![]() Ég verð ansi pirraður ef þetta klikkar þann 29. september. |
Author: | Jónas Karl [ Wed 24. Sep 2008 13:32 ] |
Post subject: | |
topp þjónusta ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |