bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
540 e34 vesen https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=28569 |
Page 1 of 1 |
Author: | JoeJoe [ Fri 04. Apr 2008 23:18 ] |
Post subject: | 540 e34 vesen |
Jæja bíllinn tók uppá því nú áðan að fara ganga illa og gerði ekkert þegar ég steig niður inngjöfina heldur rétt mallaði áfram, samt gat ég náð snúningnum upp þegar ég var með bílinn í park. Svo er lausagangurinn í honum lélegur líka mikil gufa úr pústinu en samt er enginn skrítinn litur á olíu eða neitt sem bendir til að heddpakkningin sé farin. Ég fékk bílinn úr B&L fyrir viku síðan þar sem að þeir sögðust hafa lagað vandamálið og þessi gufa sem væri að koma úr pústinu væri útaf vélin væri að taka falskt loft inná sig. Þrátt fyrir að þeir hafa lagað það þá hefur bíllinn verið að leka/sjóða vatni af vélinni og ég er búinn að bæta ca 8L af 50/50 frostlög/vatni á vélina á einni viku... Er ekki líklegast að það séu bara einhverjir skynjarar farnir sem valda þessu? (fyrir utan lekann á vatninu) Svo var ég að spá ef að það kemur bilun sona rétt eftir að maður fær bílinn úr viðgerð fær maður það eitthvað bætt? |
Author: | saemi [ Fri 04. Apr 2008 23:25 ] |
Post subject: | |
Ef það er ekki pollur undir bílnum þegar þú hefur látið hann standa, þá er vatnið að fara inn í vélina! Vélin sýður ekki vatni af vélinni. Kælikerfið er lokað kerfi sem ekkert gufar upp af basically. Það er ekkert gefið mál að heddpakkning fari þannig að vatn fari í olíuna. Hún getur alveg farið á þann veg að það leki bara vatn inn á hana. Fyrsta mál að athuga, lekur bíllinn kælivatni. If yes, then fix it. If no,.... you've got a serious problem! |
Author: | Lindemann [ Sat 05. Apr 2008 01:02 ] |
Post subject: | |
miðað við þessar upplýsingar bendir allt til þess að vatnið sé að leka inná brunahólf, sem þýðir að heddpakkning eða hedd sé ónýtt. Pakkning náttúrulega líklegri. |
Author: | UnnarÓ [ Sat 05. Apr 2008 13:29 ] |
Post subject: | |
Ég lenti í nákvæmlega sömu vandamálum. Herti allar kælivökvahosur; vandamálið úr sögunni. |
Author: | JoeJoe [ Sat 05. Apr 2008 19:14 ] |
Post subject: | |
UnnarÓ wrote: Ég lenti í nákvæmlega sömu vandamálum. Herti allar kælivökvahosur; vandamálið úr sögunni.
alveg eins með inngjöfina og allt það? |
Author: | UnnarÓ [ Sun 06. Apr 2008 16:25 ] |
Post subject: | |
JoeJoe wrote: UnnarÓ wrote: Ég lenti í nákvæmlega sömu vandamálum. Herti allar kælivökvahosur; vandamálið úr sögunni. alveg eins með inngjöfina og allt það? Ég var kannski fullfljótur á mér ![]() Var að keyra í gær og þá alltíeinu verður hann grútmáttlaus og er greinilega ekki að ganga á öllum stimplum ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |