Page 1 of 1

Smyrja pedala og þreytandi hljóð inni. E-36

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 02:34
by Brútus
Pedalarnir í E-36 hjá mér eru farnir að ískra svolítið þegar ég stíg á þá. Svona eins og "marr" í gamalli hurð sem er hallað aftur. Kannist við hljóðið, en annars hvaða smur er best að setja á svona og kemst maður að þessu á einhvern auðveldan máta ?

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 02:42
by Axel Jóhann
Smávegis koppafeiti.



Kemst eflaust vel að þessu ef þú tekur plast coverið sem er undir stýrinu og að pedulum frá. 8)

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 02:54
by Brútus
Takk takk.
Smyrja bara smá á þetta. Ég er að taka bílinn í gegn að innan núna sko. Það er líka einhver laus skrúfa eða eitthvað helvíti einhversstaðar í innréttingunni sem veldur því að þegar að bíllinn er að vinna sig upp þá svona tikkar stundum í einhverju plasti/skrúfu/einhverju. Ekkert laust svo ég finni en maður er svona að taka þetta í gegn. Samt alveg klár á að þetta er eitthvað inni í bílnum og ég heyri að það er bílstjóramegin.

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 04:30
by Gunnar Hnefill
Brútus wrote:Takk takk.
Smyrja bara smá á þetta. Ég er að taka bílinn í gegn að innan núna sko. Það er líka einhver laus skrúfa eða eitthvað helvíti einhversstaðar í innréttingunni sem veldur því að þegar að bíllinn er að vinna sig upp þá svona tikkar stundum í einhverju plasti/skrúfu/einhverju. Ekkert laust svo ég finni en maður er svona að taka þetta í gegn. Samt alveg klár á að þetta er eitthvað inni í bílnum og ég heyri að það er bílstjóramegin.
Ég hef lent í þessu báðu sem þú ert að tala um með E36 að ískrar í pedulunum og þessu með lausar skrúfur

notaði WD 40 á pedalana virkaði (koppafeiti er samt betri)

og svo við óhljóðum undan einhverjum lausum skrúfum, þá reyndi ég að srúfa allt í sundur inníbílnum og herða allar skrúfur sem ég fann og þá fór það hljóð :wink: