e30 Cabrio - Aulaspurningar.. :)

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

e30 Cabrio - Aulaspurningar.. :)

Postby Deviant TSi » Mon 31. Mar 2008 14:11

Nú er farið að vora og ég er að fara að taka blæjuna mína úr vetrargeymslunni. Það eru tvö issue sem ég þarf að tækla..

Annarsvegar þá var blæjan byrjuð að leka meðfram hurðarlista. Ég er ekki akkúrat mikill "do it yourself" bílakall þannig að vitið þið hvert ég gæti leitað til að láta kíkja á það? Hugsanlega þarf bara að skipta um lista, það væntanlega þarf þá að panta svoleiðis að utan eða hvað?

Hinsvegar er er það rafmagnsissue, hann leiðir út einhverstaðar. Á ekki bara hvaða verkstæði að geta ráðið við að finna útúr því eða mælið þið með einhverjum sérstökum?

Annars er ég nú að fara að auglýsa bílinn formlega til sölu bráðum þar sem ég er að fara að flytja af landi brott.. Fyrir áhugasama þá er þetta gamli svarti 320(325) cabrioinn hans Einsa og þar á undan Danna Djöfuls. Fyrir utan þessi atriði hér fyrir ofan þá er bíllinn í góðu ástandi og lítur mjöög vel út :) Set inn auglýsingu og myndir og fleira þegar ég er búnað ná í hann (hann er í geymslu útá landi).
E30 Cabrio seldur :(
User avatar
Deviant TSi
Kassabílstjóri
 
Posts: 214
Joined: Fri 04. Jun 2004 11:42
Location: Undir rúminu þínu..

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests