bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Ofvirk þjófavörn (e38 750iL 1997)
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=28392
Page 1 of 2

Author:  trigger [ Sat 29. Mar 2008 15:05 ]
Post subject:  Ofvirk þjófavörn (e38 750iL 1997)

Það er greinilegt að 750iL bimminn sem ég keypti saknar fyrri eigenda ógurlega. Hann rekur reglulega upp harmakvein hér út á plani hjá mér. Harmakveinin eru stutt flaut og blikk í takt á stefnuljósunum. Ég er bæði búinn að prófa að læsa með fjarstýringunni og hreinlega setja lykilinn í og snúa. Það er ekki hægt að læsa og svo loka (skynsöm skepna...).

Stundum byrjar hann mjög stuttu eftir að maður læsir, stundum líða einhverjir tugir mínútna. Eina leiðin til að fá hann til að þegja er að hafa hann ólæstan, sem er e.t.v. ekki mjög góð hugmynd.
Eina sem mér dettur í hug er að þetta sé einhver ofvirkni í þjófavörn? Er einhvern veginn hægt að læsa bílnum án þess að setja þjófavörnina á?

Author:  Hlynzi [ Sat 29. Mar 2008 15:21 ]
Post subject: 

Það er alltaf ágæt lausn að þagga niður í þessu með því að taka flautuna úr sambandi.
Er ekki einhver rofi bara að trufla þjófavörnina, svosem sambandsleysi einhversstaðar ?

Author:  trigger [ Sat 29. Mar 2008 15:38 ]
Post subject: 

Jú mig grunar að einhver skynjari eða slíkt sé að valda þessu, var nú aðallega að spá í eitthvert quick-fix svona til að geta læst bílnum án þess að trufla nágrannana.
Ætti örugglega að vera hægt að lesa út úr því með réttu græjunum hvaða rafmagnsdraugur þetta er.
Datt bara í hug að það væri eitthvað eins og að halda Lock takkanum á fjarstýringunni niðri í 5 sek eða eitthvað sem myndi slökkva á kerfinu eins og það leggur sig þangað til böggið sjálft finnst.

Author:  slapi [ Sat 29. Mar 2008 16:43 ]
Post subject: 

veit ekki til þess að það sé hægt að aftengja þjófavörnina svona í fljótu bragði.
Best er að hringja niðrí B&L og spyrja hvort þú getir rennt við og láta lesa af þessu.
Ætti að koma upp í tölvunni.

Author:  iar [ Sat 29. Mar 2008 17:13 ]
Post subject: 

Blessaður trigger og til hamingju með vagninn! :-D

Í E39 er hægt að slökkva á þjófavörninni (motion og tilt sensors) með því að læsa tvisvar. Við seinni læsinguna slökknar á vörninni en hurðar eru áfram læstar.

Author:  trigger [ Sat 29. Mar 2008 18:11 ]
Post subject: 

Takk IAR ;) Þetta er alveg merkilega gott skal ég segja þér, gæti ábyggilega vanist þessu.

Prófaði þetta með 2var á lock (er eins í e38) og þegir ennþá en það hafa komið svona langar þagnir áður. Sá á google-inu að það væri eitthvert aukabatterí fyrir þjófavörnina og hún fengi svona kast þegar það er orðið slappt. Það var auðvitað frekar kalt í nótt þannig að hugsanlega varð spennufall í þessu batteríi. Í öllu falli kemur vonandi einhver lestur út úr þessu eftir helgi, bara betra að geta læst bílnum þangað til...

Geta ekki TB lesið úr svona líka? Svona ef maður vill ekki endilega kíkja til B&L?

Author:  burgerking [ Sat 29. Mar 2008 18:21 ]
Post subject: 

trigger wrote:

Júbb tb getur lesið og basically hver sem á svona snúru + forrit.. :D

Author:  drolezi [ Sun 30. Mar 2008 12:09 ]
Post subject: 

Mér finnst líklegt að þetta sé batterístengt. Láta mæla batterí(in).

Author:  slapi [ Sun 30. Mar 2008 13:36 ]
Post subject: 

burgerking wrote:
trigger wrote:
Takk IAR ;) Þetta er alveg merkilega gott skal ég segja þér, gæti ábyggilega vanist þessu.

Prófaði þetta með 2var á lock (er eins í e38) og þegir ennþá en það hafa komið svona langar þagnir áður. Sá á google-inu að það væri eitthvert aukabatterí fyrir þjófavörnina og hún fengi svona kast þegar það er orðið slappt. Það var auðvitað frekar kalt í nótt þannig að hugsanlega varð spennufall í þessu batteríi. Í öllu falli kemur vonandi einhver lestur út úr þessu eftir helgi, bara betra að geta læst bílnum þangað til...

Geta ekki TB lesið úr svona líka? Svona ef maður vill ekki endilega kíkja til B&L?

Júbb tb getur lesið og basically hver sem á svona snúru + forrit.. :D

B&L sér mikið meira , ekki víst að TB sjái útur vandamálinu.

Author:  burgerking [ Sun 30. Mar 2008 13:51 ]
Post subject: 

slapi wrote:

Sér mikið meira? Hvernig þá? Það er ekki einsog B&L séu með e-h spes forrit sem sér aðrar villumeldingar.. þær hljóta allar að koma upp ef þú ert með aflestrarforrit fyrir bmw og snúru ?

Author:  saemi [ Sun 30. Mar 2008 13:53 ]
Post subject: 

Nei, B&L sér meira en aðrir sem lesa af bílunum hér á landi...

Author:  slapi [ Sun 30. Mar 2008 14:43 ]
Post subject: 

B&L sér öll gildi sem koma inn í tölvuna sem um ræðir , villurnar geta þýtt annað í testernum og B&L hafa aðstöðuna til að fræða sig um villuna ef hún er til staðar.

Þegar lesið er af bíl getur verið bilun í kerfinu þó að innra kerfi tölvunar nemi það ekki sem villu , í þessu tilviki getur verið einhver skynjari sem nemur stöðugt tilt eða álíka. Aðstæðunar geta verið þannig að villa komi ekki upp á það en kerfið byrjar alltaf að flauta vegna kerfið nemur tilt.
B&L getur því farið í gildin og séð að tilt sensorinn sýnir einhverja tóma vitleysu og numið sýna bilanagreiningu útfrá því.

TB getur þetta ekki.

Author:  trigger [ Mon 31. Mar 2008 22:52 ]
Post subject: 

Jæja þetta væl er byrjað aftur (var þægur í tvær nætur samt).
Þetta virðist byrja nokkuð random eftir að bílnum er læst. Stundum rétt á eftir en stundum líða margir klukkutímar. Svo hins vegar þegar þetta er farið af stað endurtekur hljóðmerkið sig á 5 mínútnafresti og keyrir í c.a. mínútu með flauti og blikki á stefnuljósum, væntanlega af því að maður "clearar" ekki aðvörunina.
Sýnist allt stefna í aflestur hjá B&L en spennufall í rafgeymi kæmi mér ekkert á óvart, virðist vera algengt vandamál í þessum bransa ;-)
Klappaði honum aðeins núna áðan þegar hann byrjaði að skæla og vonandi sefur hann vært í nótt.

Author:  trigger [ Tue 01. Apr 2008 11:57 ]
Post subject: 

Fór í smá útvarps"upgrade" í morgun hjá Nesradíó og hann flat-line-aði á gólfinu hjá þeim eftir smástund. Rafgeymirinn greinilega á síðasta snúning (95Ah, síðan 2005) svo það var farið í Rafgeymasöluna í Hfj og hann mældist lélegur (gaf 340A en átti að gefa 450A) og var skipt í 110Ah geymi sem passaði betur í festingarnar en þessi 95Ah trítill sem greinilega lifði ekki lengi við að koma þessari V12 sleggju í gang.
Verður fróðlegt að sjá hvort þetta leysi svefntruflanirnar...

Author:  íbbi_ [ Tue 01. Apr 2008 13:02 ]
Post subject: 

burgerking wrote:
slapi wrote:
burgerking wrote:
trigger wrote:
Takk IAR ;) Þetta er alveg merkilega gott skal ég segja þér, gæti ábyggilega vanist þessu.

Prófaði þetta með 2var á lock (er eins í e38) og þegir ennþá en það hafa komið svona langar þagnir áður. Sá á google-inu að það væri eitthvert aukabatterí fyrir þjófavörnina og hún fengi svona kast þegar það er orðið slappt. Það var auðvitað frekar kalt í nótt þannig að hugsanlega varð spennufall í þessu batteríi. Í öllu falli kemur vonandi einhver lestur út úr þessu eftir helgi, bara betra að geta læst bílnum þangað til...

Geta ekki TB lesið úr svona líka? Svona ef maður vill ekki endilega kíkja til B&L?

Júbb tb getur lesið og basically hver sem á svona snúru + forrit.. :D

B&L sér mikið meira , ekki víst að TB sjái útur vandamálinu.

Sér mikið meira? Hvernig þá? Það er ekki einsog B&L séu með e-h spes forrit sem sér aðrar villumeldingar.. þær hljóta allar að koma upp ef þú ert með aflestrarforrit fyrir bmw og snúru ?

þú hefur ekki kynt þér þetta mjög vel? TB eru með hvað mixaða snúru laptop og carsoft? meðan B&L eru með sérstaka tölvu frá bmw eingöngu til að lesa bmw,´frá sömu aðilum og tölvukerfið í bílnum?

það er ekki einu sinni sambærilegt að lesa bíl í umboði eða bosch service eða á almennu verkstæði, þetta er ég búinn að margreyna

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/