Page 1 of 1

Leiðinda gangur í M50b25tu *Update*

PostPosted: Fri 21. Mar 2008 01:40
by Saxi
Getur maður með einhverju móti athugað virkni súrefnisskynjara?

Bíllinn tók upp á því áðan eftir um 8km rólegan akstur að ganga hrikalega tussulega. Sérstaklega er hann slæmur við gjöf í þungum gír en er í raun hvergi góður á snúningssviðinu, kraftlaus, missandi út cylendra (að mér finnst) og hægagangurinn allt of hægur.

Engar villubendingar í mælaborði.

Ég var búinn að reyna að finna vacum leka en á eftir að tékka betur á því á morgun. Datt helst í hug að þetta væri lambda skynjarinn. Skipti um kerti fyrir um 6000km.

Hugmyndir vel þegnar :D

.

PostPosted: Fri 21. Mar 2008 02:53
by Wolf
Þetta gæti líka verið bilaður knastásskynjari eða MAF, myndi telja lang best að láta lesa strax af honum.

PostPosted: Fri 21. Mar 2008 12:39
by Saxi
Gul drulla í olíulokinu, lækkun í vatnsforðabúri og versnandi gangur segja mér að ég þrufi að líta á heddpakkninguna :(

Ljósi punkturinn er þó sá að hann hefur ekki hitnað neitt hjá mér.

PostPosted: Fri 21. Mar 2008 19:55
by íbbi_
gula drullan þarf ekki að tákna þetta,

settu kælivatnið í rétta stöðu,

láttu lesa strax af bílnum, það er fyrsta skrefið, taktu eftir hvort hann éti alltaf af kælivatninu án þess að hann sé að leka því

PostPosted: Wed 26. Mar 2008 22:49
by Saxi
All is well

Rifa á lofthosu (sem ég fann ekki í fyrstu) virðist hafa orsakað þetta. Ný hosa, bíllinn gengur eins og klukka og gula gumsið að hverfa.

Hvað vatnið varðar þá hef ég sennilega ímyndað mér einhverja lækkun á því :?

Fór svo með hann í tölvu og hann kvartaði yfir MAF og Súrefnisskynjara, sennilega vegna falska loftsins.

Kveðja

bilun

PostPosted: Wed 26. Mar 2008 22:55
by Hrannar
Láttu lesa af honum í TB. Gæti verið eitthvað af skynjurunum.
Knastás,sveifarás eða súrefnisskynjarar.

Re: bilun

PostPosted: Wed 26. Mar 2008 23:05
by Saxi
Hrannar wrote:Láttu lesa af honum í TB. Gæti verið eitthvað af skynjurunum.
Knastás,sveifarás eða súrefnisskynjarar.


Kóðarnir voru þurrkaðir út og hann er ekki farinn að kvarta aftur. Það verður tekið á því þegar og ef að því kemur.

Kveðja