Page 1 of 2

540 pústkerfi

PostPosted: Mon 17. Mar 2008 21:14
by Mánisnær
Hvort mundir þú láta sérsmíða hérna heima kerfi undir bílinn og panta að utan flottann supersprint/remus/?? endakut, eða panta að utan komplett kerfi?

Er ekki séns að fá M5 Supersprint kerfið hanns Tomma undir 540 bíl?

endirinn fittar ekki útaf varardekki í 540, sem ekki er í m5.. .??

Ef hægt væri að mixa þetta einhvernveginn væri það klárlega besta leiðin, held ég. en ég veit ekki. Hvað segið þið?

PostPosted: Mon 17. Mar 2008 21:16
by Alpina
LANGódýrasta moddið er að taka

resenatorinn úr bílnum Y kútur undur miðjum bíl ca..

Hörku hljóð

PostPosted: Mon 17. Mar 2008 21:23
by GummiH
taka reasonator og annan kútinn aftast... láta leiða allt í gegnum annan kútinn... Hannsi gerði þetta.... með mjöööööööög flottum árangri :!:

Svo er hann búinn að taka aftari hvarfa úr núna líka.... ALGJÖR SCREAMER...

Tudda hljóð.. en samt subtle :!:

PostPosted: Mon 17. Mar 2008 21:43
by Mánisnær
Já hörku hljóð að opna svona orginal kerfið.

en PERFORMANCE ? vs aftermarket

sameshit?

PostPosted: Mon 17. Mar 2008 21:47
by Alpina
Máni wrote:Já hörku hljóð að opna svona orginal kerfið.

en PERFORMANCE ? vs aftermarket

sameshit?


Heyrðu félagi,, þó að þú fengir 20 hö þá fyndirðu ekki muninn

PostPosted: Mon 17. Mar 2008 21:59
by íbbi_
þegar maður er með um eða yfir 300hö finnur maður ekki svo glatt fyrir því.. nema maður þekkji bílin því betur

PostPosted: Mon 17. Mar 2008 22:04
by Mánisnær
kerfi + map

hlýtur að finnast einhver smotterís munur.

annars skiptir það mig ekki öllu

þetta er ekki minn bíll.

PostPosted: Mon 17. Mar 2008 22:38
by íbbi_
það er ekki alltaf bara hestafla tölur sem breyta öllu, þegar bílar eru teknir og remappaðir þá gerbreytast þeir oft í hegðun þó svo að það mælist ekki svo mikill munr á blaði

PostPosted: Tue 18. Mar 2008 05:02
by Danni
Ég tók resonatorinn og annan pústkútinn úr gamla 540 mínum.



Svona hljómaði hann eftir það.

Það kom flott hljóð. En, ég mun ekki gera þetta á mínum núverandi 540. Það var orðið frekar þreytt að keyra brautina svona enda var planið að setja kútana í aftur en svo seldi ég bílinn og lét kútana bara fylgja.

Fann engan mun á virkninni í bílnum, sama hvort það var til hins verra eða til hins betra.

Að mínu mati, þá er þetta EKKI málið nema manni sé skítsama þó að bíllinn sé hávær á langkeyrslu.

PostPosted: Tue 18. Mar 2008 08:04
by Hannsi
Er búinn að láta taka 2 hvarfa af 4 resonator og annan aftasta kút.

lausagangi og á 100 er hann hljóðlaus (var)

Þrátt fyrir svipað modd og Danni er minn ekki jafn hávær á 90-100.

En mikill munur á gjöf. Enda margir talið minn vera m5 bara frá hljóðinnu að dæma.
Minn
(reyndar ekki búið að taka hvarfa þarna)
http://www.123.is/hannsi69/videos/644579214.wmv

PostPosted: Tue 18. Mar 2008 15:45
by Angelic0-
Ég veit ekki hver munurinn var á þínum Danni og Hannesar...

Ég sat þó minna í þínum og get því eflaust ekki dæmt þetta...

Hannesar bíll var með sama moddi fyrst.... kom alveg ótrúlega flott og góð nóta..

tókum svo 2 af 4 hvarfanna úr, og VÁ :shock:

BRUTAL á gjöf... en algjörlega subtle á rólegheita-akstri (innanbæjar og á 90-100kmh CRUISE)...

Mér fannst ég finna mun á response..... erfitt samt að greina til um aflið :!:

PostPosted: Tue 18. Mar 2008 17:18
by Hannsi
Angelic0- wrote:Ég veit ekki hver munurinn var á þínum Danni og Hannesar...

Ég sat þó minna í þínum og get því eflaust ekki dæmt þetta...

Hannesar bíll var með sama moddi fyrst.... kom alveg ótrúlega flott og góð nóta..

tókum svo 2 af 4 hvarfanna úr, og VÁ :shock:

BRUTAL á gjöf... en algjörlega subtle á rólegheita-akstri (innanbæjar og á 90-100kmh CRUISE)...

Mér fannst ég finna mun á response..... erfitt samt að greina til um aflið :!:

Minnir að það hafir verið sett 3" hjá Danna í stað resonator en 2.75" hjá mér :)

PostPosted: Tue 18. Mar 2008 17:26
by Danni
Hannsi wrote:Minnir að það hafir verið sett 3" hjá Danna í stað resonator en 2.75" hjá mér :)


Rétt. Ég hef samt ekki heyrt um neinn sem hélt að bíllinn þinn væri M5 :lol:

PostPosted: Tue 18. Mar 2008 19:01
by Angelic0-
Danni wrote:
Hannsi wrote:Minnir að það hafir verið sett 3" hjá Danna í stað resonator en 2.75" hjá mér :)


Rétt. Ég hef samt ekki heyrt um neinn sem hélt að bíllinn þinn væri M5 :lol:


Ég stóð inni í KefJet þegar að Hannes kom æðandi á hlið í gegnum beygjuna hjá Pústþjónustunni... þá heyrist í Bjögga Freymóðs:

"Hva' hver er að tæta á M5?" "Var Hannes að kaupa M5?"

svo nokkrir fleiri....

PostPosted: Tue 18. Mar 2008 19:13
by Hannsi
Danni wrote:
Hannsi wrote:Minnir að það hafir verið sett 3" hjá Danna í stað resonator en 2.75" hjá mér :)


Rétt. Ég hef samt ekki heyrt um neinn sem hélt að bíllinn þinn væri M5 :lol:


Enda vita flestir í hringum mann að þetta ER 540 ;)

En margur maðurinn þekkir endilega ekki í sundur M5 og 540 með heavily modified púst.