Page 1 of 1
Olíur á mótorinn

Posted:
Thu 28. Feb 2008 13:10
by jens
Er með M42 mótor og er að nota 10-40W olíu, sé það mikið rætt á erlendum spjallsíðum að menn eru að fara í mjög þunnar olíur jafnvel 0-40W og rífa svo ventlalokið af til að sína hvað þessi þunna olía hefur þrifið vélina vel, allt hreint og fint. ????

Posted:
Thu 28. Feb 2008 13:26
by srr
Er þetta ekki bara spurning um kulda-/hitaþol olíunnar.
Þeas að 0-40W þoli meiri kulda en 10-40W. (sökum þess að 0-40W er þynnri en 10-40W)
En aftur á móti í heitu hitastigi, þá er hún þynnri og gæti þar af leiðandi "hreinsað" betur....veit ekki með það.

Posted:
Thu 28. Feb 2008 13:33
by Einarsss
engin hætta á að það fara leka með pakkdósum og svoleiðis? þegar það er farið að nota þynnri olíu á gamla vél.

Posted:
Thu 28. Feb 2008 13:41
by gstuning
Held að það sé nú bara alveg eins gott að þrífa þarna ofan í sjálfur og halda áfram að nota það sem BMW mælir með. á meðan þú skiptir nógu oft um þá helst þetta sem hreinast.