Page 1 of 1

Gormar í E38 730

PostPosted: Mon 25. Feb 2008 17:11
by atroxinn
Hvað eru orginal gormarnir í E38 730 stórir ? :oops:
Held ég verði að neyðast til þess að hækka bílinn minn smá, orðinn ferkar þreyttur á að reka hann oft niður í helvítis hraðahindranirnar hér á Egilsstöðum :oops:

PostPosted: Mon 25. Feb 2008 17:21
by Angelic0-
ef að þú ert með lækkunargorma þá skal ég skipta við þig á orginal ;)

PostPosted: Mon 25. Feb 2008 18:20
by atroxinn
hehe, verð að viðurkenna að ég bara hef ekki hugmynd um það, vona það. Þar sem ég þarf að fara óeðlilega hægt yfir hraðahindranirnar og ef ég er með fullan bíl þá rekst hann undantekningalaust í.

PostPosted: Mon 25. Feb 2008 20:22
by Geirinn
Er hleðslujafnari í þessum bíl ? Og er hann í lagi ?

PostPosted: Mon 25. Feb 2008 21:20
by Alpina
Geirinn wrote:Er hleðslujafnari í þessum bíl ? Og er hann í lagi ?


Góð spurning

PostPosted: Mon 25. Feb 2008 22:18
by atroxinn
tjahh, nú veit ég ekki :/ einhver easy leið að komast að því ?

PostPosted: Mon 25. Feb 2008 23:33
by ömmudriver
atroxinn wrote:tjahh, nú veit ég ekki :/ einhver easy leið að komast að því ?


Hentu t.d. inn mynd af bílnum óhlöðnum og í birtu. Já og taktu mynd af annarri hvorri hliðinni.

PostPosted: Tue 26. Feb 2008 12:19
by atroxinn
ömmudriver wrote:
atroxinn wrote:tjahh, nú veit ég ekki :/ einhver easy leið að komast að því ?


Hentu t.d. inn mynd af bílnum óhlöðnum og í birtu. Já og taktu mynd af annarri hvorri hliðinni.


Hér eru nokkrar myndir http://public.fotki.com/Atroxinn/bmw-e38-730/
Tek betri myndir af "krílinu" þegar það kemur betra veður, þegar ég er nýbúinn að stífbóna hann og þegar ég er kominn á 18" mína ;D

PostPosted: Tue 26. Feb 2008 12:43
by ömmudriver
Í fljótu bragði get ég ekki séð betur en að bíllinn sé með óbreytta fjöðrun.

PostPosted: Tue 26. Feb 2008 13:07
by atroxinn
Tók eftir því núna þegar ég var að taka þessar myndir að hann er talsvert lægri að framan heldur en ég hélt hann væri. Hvert ætti ég að snúa mér til þess að hækka hann að framan þ.e.a.s. fá stærri gorma ofl. eða er það kanski ekkert möguleiki? annaðhvort að hafa hann orginal eða lækka bílinn?