Page 1 of 1

Ingsie vantar Hjálp með Koni Sport strut insert eða svipað??

PostPosted: Thu 21. Feb 2008 17:20
by jon mar
Jæja. Eftir að vera búinn að liggja með þetta dót undir rúmi í nokkra mánuði í geymslu, þá stefnir í að ég geti hafist handa á því að skella þessu í innann fárra vikna. Er með nokkrar spurningar til þeirra sem þekkja til svona dóts. Læt meira að segja leiðbeiningarnar frá Koni liggja með hérna, sem eru á myndmáli ásamt töflu með herslutölum. Ekki alveg fullnægjandi svo að ég skilji vel.

Hér er dótið í heild
Image

Svo er hérna vandamálamyndin.
Hvað eiga þessir plasthringir(rauða örin) að vera, og hvar eiga þeir að vera.
Ég veit að þessir járn hringir (græna örin) eru spacerar sem ættu með réttu að vera staðsettir ofaná insertinu eftir að það er komið niður í ströttinn, svona til að það sé ekki sláttur á draslinu.
Image

Svo hérna er leiðbeingablaðið
Á einum stað þarna er sýnt eitthvað sem gæti verið frostlögur og því helt í ströttinn. Ég hef heyrt að það sé notaður frostlögur, en líka sérstök olía. Eitthvað sem mælir á móti hinu og öfugt. Á svona olíu líklega til í skúrnum, og líklega frostlög líka. Endilega commentið á þetta.
Image

Og allar aðrar athugasemdir mega náttúrlega flakka líka ef ástæða er til, vantar bara allar upplýsingar sem gott er að hafa bakvið eyrað í svona aðgerð. Hef aldrei skipt um strut insert áður, bara dótið í heild. Á að vera vel hæfur í svona verk miðað við fyrri afrek, og ég á fullt af verkfærum eða hef öll þau sem vantar í seilingarfjarlægð.

PostPosted: Thu 21. Feb 2008 18:24
by BlitZ3r
er þetta ekki stillanlegt kerfi, ef svo hvar stilluru þá ?????

PostPosted: Thu 21. Feb 2008 18:45
by jon mar
Framdempararnir eru stillanlegir með litlum hnúði sem er settur ofaná þá.

Afturdemparana er aðeins hægt að stilla þegar þeir eru ekki í bíl, og þá þarf að pressa þá alveg saman til að tengja stillibúnaðinn og svo snýr maður víst stönginni vist mikið, hef líka heyrt að það séu hök sem maður finnur fyrir þegar maður stillir þetta.

Ekki komið svo langt hjá mér enþá að ég viti neitt um það, geri svoleiðis bara þegar ég kemst í skrúfstykki þegar þetta fer í.

PostPosted: Thu 21. Feb 2008 19:58
by BlitZ3r
jon mar wrote:Framdempararnir eru stillanlegir með litlum hnúði sem er settur ofaná þá.

Afturdemparana er aðeins hægt að stilla þegar þeir eru ekki í bíl, og þá þarf að pressa þá alveg saman til að tengja stillibúnaðinn og svo snýr maður víst stönginni vist mikið, hef líka heyrt að það séu hök sem maður finnur fyrir þegar maður stillir þetta.

Ekki komið svo langt hjá mér enþá að ég viti neitt um það, geri svoleiðis bara þegar ég kemst í skrúfstykki þegar þetta fer í.

ke var bara að pæla er mikið spá í þessum hjá mér í framtíðinni
fæ kannski að sitja í við tækifæri
:lol: :lol:

PostPosted: Thu 21. Feb 2008 20:16
by jon mar
BlitZ3r wrote:

who knows. Bíllinn hjá mér verður reyndar ekkert líkur því sem hann kom frá verksmiðju, en ég vonast eftir mjög skemmtilegri útkomu.

PostPosted: Thu 21. Feb 2008 22:11
by jon mar
93 views og enginn svarar með upplýsingar.....

Það er það mikið að hausum hérna á spjallinu, að einhver ykkar hlýtur að hafa skipt um strut insert, þó það sé af annari tegund.

PostPosted: Fri 22. Feb 2008 14:11
by jon mar
Ef nafnið Ingsie dugar til að draga að upplýsingar þá endilega share-ið :lol:

Aldrei að vita nema ég gæti samið við hana að gefa ykkur eiginhandaráritun og notuð rafmagnstæki fyrir ómakið.

PostPosted: Fri 22. Feb 2008 15:41
by Einarsss
hvítu plast gaurarnir fara ofan á demparann og eru lausir.. einhverskonar óhreinindavörn svo drullan leki ekki ofan í gúmmíð sem demparastöngin er í.

Hitt er örugglega bara til að setja í ströttan ef demparinn er laus í... eins og þú skaust sjálfur á.

PostPosted: Fri 22. Feb 2008 15:49
by jon mar
Töööff, en þá er þetta olíu/frostlögs mál eftir.

Gott að fá sem mest af öllum upplýsingum, hvað semm þarf.

Ætla sjálfur að taka myndir og skrifa DIY og pósta hér, og þá kemur þessi spurning aldrei aftur :lol: Ásamt öllum upplýsingum sem E34 menn kunna að þurfa þegar þeir fara í front end rebuild :wink:

PostPosted: Fri 22. Feb 2008 16:18
by Einarsss
er það ekki bara spyrnufóðringar, swaybar fóðringar og linkar, stýrisendar, spindilkúlur?

hef amk notað frostlög hingað til og það hefur amk ekkert klikkað.

PostPosted: Fri 22. Feb 2008 16:28
by jon mar
einarsss wrote:er það ekki bara spyrnufóðringar, swaybar fóðringar og linkar, stýrisendar, spindilkúlur?

hef amk notað frostlög hingað til og það hefur amk ekkert klikkað.

nú jæja, þá sleppi ég því bara og held þessu fyrir sjálfan mig þar sem þetta er einfalt
:D

Bara kom ekki til hugar að það væri ekki pláss fyrir gott DIY á íslensku, þar sem þetta er tæknilegt horn. En svo er náttúrlega alltaf B&L og TB bara.

PostPosted: Fri 22. Feb 2008 18:35
by Einarsss
haha sorry las þetta eitthvað vitlaust, fannst eins og þú værir að spyrja hvað þyrfti í complete front end build ;)

Altaf pláss fyrir gott DIY

PostPosted: Fri 22. Feb 2008 19:24
by Steinieini
Endilega skrifa mikið og taka myndir. Á svona kerfi sem fer í E32 með hækkandi sól 8)

PostPosted: Fri 22. Feb 2008 19:48
by jon mar
ég reikna með að fara í þetta um og eftir páska þegar allir íhlutir eru komnir. Þar á meðal Camber/caster adj plötur að framan frá Kmac.

Inní þessu er náttúrlega install á powerflex að framan og 45mm lækkun.

Fer svo í complete build á rear end síðar, þegar ég hef nálgast powerflex kit að aftan. Verður kannski götuhæft fyrir bíladaga, hver veit.