Page 1 of 1

Skipta um pakkdós á gírkassa - GETRAG 260

PostPosted: Sat 16. Feb 2008 23:24
by Einarsss
Er að lenda í vandræðum með að losa stykki númer 4(HOUSING COVER) á þessum link, Ekkert mál að ná að losa allt boltana (nr7) en ég næ ekki ekki að draga hitt af ... og það er eiginlega enginn staður þarna til spyrna skrúfjárni uppvið þetta og reyna þvinga þetta af þannig ...

Ekki getur verið að það sé skrúfgangur á þessu og það þurfi að snúa þessu af?

Einhver góð leið til að ná þessu af?

http://www.realoem.com/bmw/showparts.do?model=1111&mospid=47263&btnr=23_0133&hg=23&fg=15

PostPosted: Sun 17. Feb 2008 00:54
by slapi
ég hef nú einhverntímann gert þetta minnir mig.
þá losaði ég boltana alveg og notaði boltana til að losa upp á fremsta stykkinu.

PostPosted: Sun 17. Feb 2008 18:03
by Stebbtronic
Er þetta bara ekki spurning um að ná sér í gaslampa og hita þetta aðeins...

PostPosted: Sun 17. Feb 2008 18:17
by Einarsss
skal tjekka á því

PostPosted: Sun 17. Feb 2008 23:41
by Einarsss
Þetta náðist af! var alveg vel fast á... en Steinieini massi náði þessu 8)

BTW hvar ég nálgast mjög djúpan 30mm topp eða fastan lykil sem er ekki mikill um sig?(ekki þykkur á hringnum eða á gafllinum(ef það heitir það) ) :?

PostPosted: Mon 18. Feb 2008 18:55
by Einarsss
Fann 30mm djúpan topp, kostaði 3700 kall í fossberg :shock:

PM ef einhver vill leigja hann :lol: