Page 1 of 1

Spurningar um hvarfakút

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 17:52
by JoeJoe
Ég var að velta því fyrir mér hvernig það lýsir sér þegar hvarfakúturinn er orðinn slappur, ég er búinn að vera lenda í því að bíllinn blæs út alveg helling af gufu, maður þarf að keyra hann í allavega klukkutíma svo að hún hætti að koma. Mér dettur í hug að það sé gat á hvarfakútnum eða þá að það er einhvernmegin að safnast vatn inn í hann sem veldur þessari gufu, eða er það kanski eðlilegt þegar maður er með 540 útaf stærð vélarinnar sem það kemur sona mikil gufa í útblæstrinum?. Svo er heldur enginn skrítin lykt af útblæstrinum, eins og olíulykt eða eitthvað, þannig að ég held að þetta sé ekkert annað en vatn í hvarfakútnum/pústkerfinu.

Svo var ég líka að pæla hvort að e34 540 komist í gegnum skoðun án þess að vera með hvarfakút?

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 18:34
by _Halli_
Bílar á framleiðsluári 1995 og síðar þurfa að hafa hvarfakút og eiga að vera innan settra mengunarmarka.


Fer eftir því hvaða árgerð bíllinn er.

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 18:36
by bjahja
hmmmmm, þetta hljómar eitthvað skringilega

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 18:46
by Benzari
Bíllinn ætti að sleppa í gegnum skoðun. Annars er reglan'95 og yngra.

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 19:08
by Tommi Camaro
gufa = Vatn í sprengirými = $$$$$$,

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 19:09
by bjahja
Tommi Camaro wrote:gufa = Vatn í sprengirými = $$$$$$,

Er það ekki

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 19:30
by JoeJoe
Tommi Camaro wrote:gufa = Vatn í sprengirými = $$$$$$,


þetta hættir að koma þegar bíllinn er búinn að ganga í nokkurn tíma eins og ég sagði í póstinum þannig að það getur ekki verið frá vélinni og þá ætti maður líka að finna lyktina af gufuni

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 19:37
by Tommi Camaro
JoeJoe wrote:
Tommi Camaro wrote:gufa = Vatn í sprengirými = $$$$$$,


þetta hættir að koma þegar bíllinn er búinn að ganga í nokkurn tíma eins og ég sagði í póstinum þannig að það getur ekki verið frá vélinni og þá ætti maður líka að finna lyktina af gufuni

hvað ertu með svona svakalega DTM púst að það rignir inn í það ?

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 19:39
by xtract-
ertu búinn að vera að bakka í einhverja af stóru pollunum sem voru? :D

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 21:53
by JoeJoe
En ok segjum að headpakkningin sé farin að gefa sig, hvernig gæti ég verið alveg viss um að hún sé orðin léleg, breytist gangurinn í vélinni? verður meiri háfaði? eða hverju ætti ég að leitast eftir?

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 22:03
by siggir
Opnaðu olíulokið. Ef það er hvít/grá/brún drulla á því ertu með ónýta pakkningu.