Page 1 of 1

Staðsetning á ABS Skynjurum í E-36

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 16:32
by Brútus
Hvar eru skynjarnarnir ?
Eru þeir að framan eða aftan eða eru þeir kannski báðum meginn og þá á öllum hjólum ?
Er að ganga í gegnum tímabil með bílnum mínum þar sem að við erum að fá Abs ljósið svona tilviljunarkennt. Stundum lýsir það og stundum ekki. Sá sem ég talaði við á verkstæði sagði að þetta væri líklega klossarnir að fara. Hann ráðlagði mér að skipta um klossa þar sem að skynjarnarnir væru.
Er eitthvað til í þessu ? Ef svo er hvar er þetta staðsett ?

Re: Staðsetning á ABS Skynjurum í E-36

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 16:47
by gstuning
Brútus wrote:Hvar eru skynjarnarnir ?
Eru þeir að framan eða aftan eða eru þeir kannski báðum meginn og þá á öllum hjólum ?
Er að ganga í gegnum tímabil með bílnum mínum þar sem að við erum að fá Abs ljósið svona tilviljunarkennt. Stundum lýsir það og stundum ekki. Sá sem ég talaði við á verkstæði sagði að þetta væri líklega klossarnir að fara. Hann ráðlagði mér að skipta um klossa þar sem að skynjarnarnir væru.
Er eitthvað til í þessu ? Ef svo er hvar er þetta staðsett ?


ABS skynjarar fara ekki að blikka þegar klossar eru að verða búnir,
ef það er ABS ljósið þá er einn af skynjurunum að detta út líklegast.
þeir eru á öllum hjólum , athugaðu linkinn sem ég setti í DYI horns þráðinn
þar geturðu náði í nokkra PDF skrár sem munu upplýsa þig enn frekar

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 16:57
by Brútus
Ef að ég fer með bílinn í TB ættu þeir ekki að geta séð um leið hvaða skynjari er að klikka ?
Hvað kostar svona kynjari og er séns að gera við þá í stað þess að þurfa endilega að kaupa nýja ?
Sé hvergi þræði þarna sem tengjast þessu vandamáli :( . .En takk samt kærlega fyrir að svara.

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 17:24
by Hannsi
Brútus wrote:Ef að ég fer með bílinn í TB ættu þeir ekki að geta séð um leið hvaða skynjari er að klikka ?
Hvað kostar svona kynjari og er séns að gera við þá í stað þess að þurfa endilega að kaupa nýja ?
Sé hvergi þræði þarna sem tengjast þessu vandamáli :( . .En takk samt kærlega fyrir að svara.

:hmm:

Annars geta þeirekki séð nákvæmlega hver það er bara að þa ðsé farinn skynjari. bogl geta séð nákvæmlea hver það er.

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 17:24
by Lindemann
Nei það er ekki hægt að gera við skynjarana. Þeir ættu að geta séð hvaða skynjari er að gefa merki, en það er ekki víst ef villan er ekki viðvarandi.

PostPosted: Tue 12. Feb 2008 17:25
by Lindemann
annars ætti að vera hægt að viðnámsmæla skynjarana og sjá þannig hvaða skynjari þetta er......hugsanlega geta þetta samt verið leiðslurnar í skynjarana fyrst ljósið kemur bara stundum

PostPosted: Wed 13. Feb 2008 01:00
by Brútus
Já . .gæti verið vona ég . . en viti þið hvað kostar að láta lesa af svona í BogL ?
Þarftu ekki að borga þetta týpíska 10.000 kr fyrir að labba inn fyrir þröskuldinn og svo þennann 5.000 kr fyrir að fá að anda af þér BogL ferska loftinu ?