Page 1 of 1

Stýrisdæluvökvi

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 00:47
by rufuz
Búinn að eiga BMW í ca. mánuð og hann er farinn að pissa grænu og gefa óhljóð frá sér! :evil:

Kom í ljós að það lekur einhversstaðar í vökvastýrismekkanóinu og dælan er að gefa þessi óhljóð frá sér. Hef heyrt frá fleiri en einum að það eigi að vera sjálfskiptivökvi á þessu og hann eigi að vera rauður, en hann er grænn hjá mér. Ég þarf að fylla á þetta svo ég geti keyrt niður í TB án þess að stúta dælunni. Svo ég spyr eins og asni...

Er einhver spes BMW vökvi á þessu?

BTW. Bíllinn er '92 BMW e36 318is.

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 00:51
by srr
Er ekki ATF vökvi standard stuff, bara mismunandi litur?
Automatic Transmission Fluid þeas.

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 00:54
by ömmudriver
srr wrote:Er ekki ATF vökvi standard stuff, bara mismunandi litur?
Automatic Transmission Fluid þeas.


Mér líður eins og þessi græni vökvi sé "LAD" vökvinn eins og settur er á BMW með LAD þ.e.a.s. með hæðarstillandi fjöðrun eins og t.d. E32 750.

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 07:15
by Alpina
ömmudriver wrote:
Mér líður eins og þessi græni vökvi sé "LAD" vökvinn eins og settur er á BMW með LAD þ.e.a.s. með hæðarstillandi fjöðrun eins og t.d. E32 750.


BINGO

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 11:21
by saemi
athugaðu vel hvaða vökvi á að fara á hann. Það er annaðhvort atf eða chf. Ætti að standa á lokinu. EKKI fara að setja vitlausan vökva á þetta... bara leiðinlegt

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 14:32
by rufuz
ATF eða CHF. Skoða lokið betur.

Takk fyrir.

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 15:34
by Lindemann
CHF.........ef hann er grænn.

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 19:42
by slapi
ATF - CHF , og síðar líður mér þannig að það sé eitthvað sem heitir LHM einnig.

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 19:43
by Angelic0-
slapi wrote:ATF - CHF , og síðar líður mér þannig að það sé eitthvað sem heitir LHM einnig.


Það er rétt, en menn eru mis ánægðir með LHM vökvann á þessa bíla :!:

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 19:48
by Lindemann
LHM er sami vökvinn og citroen notar á sín kerfi(grænn)........held það sé eitthvað svipað chf

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 19:57
by rufuz
ImageH

Hér má sjá mynd af (skítuga) lokinu mínu af vökvabúrinu. Á lokinu stendur bara "ZF".

CHF virðist vera líklegasta stöffið. Fæst það á bensínstöðvum eða þarf maður að fara í alvöru verslun?

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 20:02
by Angelic0-
rufuz wrote:CHF virðist vera líklegasta stöffið. Fæst það á bensínstöðvum eða þarf maður að fara í alvöru verslun?


Þú ferð bara á bensínstöð og kaupir LHM vökva... fæst á ESSO og Shell...

Hann er actually ódýrari á Shell.... þó svo að hann sé í vandaðari umbúðum þar og merktur Shell....

Passaðu bara að hann sé grænn, það er til brúnn LHM vökvi líka.. sjaldgæft en hann er eitur.... fer álíka vel með dótið og að setja bremsuvökva á það !

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 20:11
by rufuz
Next stop... Shell.

Þakka aðstoðina.

PostPosted: Mon 11. Feb 2008 20:12
by Angelic0-
no problemo ;)