Page 1 of 1

Útleiðsla í E39 M5

PostPosted: Sun 10. Feb 2008 17:42
by valdiþ
Ég hef verið að vandræðast með einhverja útleiðslu í bílnum hjá mér (E39 M5) sem var það slæmt að geymirinn var alltaf dauður eftir nóttina.

Eftir mælingar og pælingar þá fann ég út að ef öryggið fyrir bordmonitor(30A í skottinu) var tekið úr þá komst ég fyrir útleiðsluna.

Hvað er á þessu öryggi fyrir utan skjáinn sjálfan? Ég tók eftir því að það eru 3 öryggi merkt Bordmonitor, eitt annað í skottinu og hitt líklega í hanskahólfinu.

Er einhver leið fyrir mig að finna út á einfaldan hátt hvað nákvæmlega gæti verið að eða á ég bara að hringja beint í B&L á morgun?

PostPosted: Sun 10. Feb 2008 19:27
by Alpina
B&L