Page 1 of 2
mjög hægar rúður

Posted:
Fri 08. Feb 2008 09:43
by FinnurKarls
sælir, þannig stendur á hjá e46 bílnum mínum að rúðurnar eru fáránlega hægar upp og niður og þá helst bílstjóra megin, þar heyrist mjög hátt "klúnk" þegar ég skrúfa upp og niður og á hún það til að festast, sérstaklega þegar það er mjög þurrt í veðri. veit einhver um góða aðferð til þess að smyrja þær eða eitthvað álíka til að laga þetta og hvað gæti verið að?

Posted:
Fri 08. Feb 2008 10:08
by Axel Jóhann
Er það ekki málið að smyrja upphalarann.

Posted:
Fri 08. Feb 2008 10:20
by _Halli_
Axel Jóhann wrote:Er það ekki málið að smyrja upphalarann.
Jú myndi skella smá koppafeiti eða annarri þykkri smurningu í þetta.
Einnig örugglega sniðugt að smyrja gúmmílistana sem halda utan um rúðuna. Hef séð svona "lúb" bæði í Hjólbarðahöllinni og BJB Pústþjónustunni. Hef samt enga reynslu af því hvað er best að nota á þessa lista.
Á við sama vandamál að stríða. Helvítis þurrkur í kvikindinu!

Posted:
Fri 08. Feb 2008 18:44
by FinnurKarls
já ok eruð þið þá semsagt að meina að maður verður samt alltaf að taka hurðarfalsið úr og líka einangrunina?, og klínist svona lúb ekki á rúðuna ef þetta er á listanum?

Posted:
Fri 08. Feb 2008 18:54
by Berteh
Skiptir það einhverju, þá hefuru bara afsökun til að fara og þrífa dýrið


Posted:
Sat 09. Feb 2008 09:40
by FinnurKarls
hehe já þú meinar, samt sko shii hef alveg nóg að gera án þess að þurfa að vera að sjæna bílinn minn endalaust

þú samt klikkaðir á því að kíkja á hann um daginn, var nýbúinn að pólera og bóna með meguiars, hef aldrei séð jafn fokking djúpann gljáa


Posted:
Sat 09. Feb 2008 20:53
by FinnurKarls
jójójó kominn með nýjar upplýsingar, það lítur út fyrir að rúðan sé heavy laus,, kannast einhver við það? semsagt hún vaggar svona til hliðar þegar maður togar í hana, anyways lítur út fyrir að það hægi svona á henni þar sem hún dregst utaní listanum

Posted:
Sun 10. Feb 2008 02:56
by Berteh
Held að þú fáir bestu e46 oriented svörin á e46fanatics

Posted:
Sun 10. Feb 2008 17:28
by FinnurKarls
eru það einhverjir e46 brjálæðingar þar eða?

Posted:
Sun 10. Feb 2008 17:38
by FinnurKarls
og er ekki hægt að gera leit án þess að vera meðlimur?

Posted:
Sun 10. Feb 2008 18:21
by bjornvil
FinnurKarls wrote:og er ekki hægt að gera leit án þess að vera meðlimur?
Blessaður vertu, það tekur 1 mínútu að skrá sig á spjallið. Ég skrái mig alltaf á þessi spjöll, nota bara alltaf sama notendanafn og password, þá er ekkert mál að halda utan um þetta


Posted:
Sun 10. Feb 2008 19:52
by FinnurKarls
já ok flott

og Þá er hægt að leita?

Posted:
Sun 10. Feb 2008 19:58
by Tommi Camaro
váá þið eruð nú meiri kleinunar haldið að WD40 leysi allt. það er 2 stk armar sem koma úr upphalaranum og festast á rúðuna, klunk hljóðið kemur senilega vegna þessa að annar þeirra er dotinn úr sambandi, og rúða hefur skekkst í sleðanum og er að erfiða upp. þú þarft að rífa hurðaspjaldið af til að laga þetta.
p.s.
þoli ekki fólk sem heldur að það sé einhver laus að rappa kopparfeiti ínn í hurðina

Posted:
Sun 10. Feb 2008 23:05
by _Halli_
Tommi Camaro wrote:váá þið eruð nú meiri kleinunar haldið að WD40 leysi allt. það er 2 stk armar sem koma úr upphalaranum og festast á rúðuna, klunk hljóðið kemur senilega vegna þessa að annar þeirra er dotinn úr sambandi, og rúða hefur skekkst í sleðanum og er að erfiða upp. þú þarft að rífa hurðaspjaldið af til að laga þetta.
p.s.
þoli ekki fólk sem heldur að það sé einhver laus að rappa kopparfeiti ínn í hurðina
Er ekki koppafeitin notuð til þess að smyrja sleðann? Ef svo skemmtilega vildi til að það væri vandamálið, væri koppafeitin ekki lausnin?
Ég hef lent í því sjálfur að listarnir eru orðnir morknir og halda rúðunni fastri. Það heyrðist klunk en það var bara hvíta plaststykkið að skorðast af og losna aftur í sleðanum.
Allt í lagi að koma með hugmyndir, hann minntist ekkert á að rúðan skekktist.
p.s. þoli ekki tilgangslaus p.s.

Posted:
Mon 11. Feb 2008 11:43
by FinnurKarls
FinnurKarls wrote:jójójó kominn með nýjar upplýsingar, það lítur út fyrir að rúðan sé heavy laus,, kannast einhver við það? semsagt hún vaggar svona til hliðar þegar maður togar í hana, anyways lítur út fyrir að það hægi svona á henni þar sem hún dregst utaní listanum
jú reyndar Þá talaði ég um að hún væri skökk og semsagt ég get togað hana til hliðar, eitt enn sem ég er að spá, þarf maður ekki eitthvað kítti til þess að festa einangrunina á aftur?
