Page 1 of 1

Skrítið hljóð í púströrinu!

PostPosted: Thu 07. Feb 2008 18:39
by Hreiðar
Ég á BMW 320d 2004 modelið, og mjög oft þegar ég starta honum kemur með skrítið hljóð í púströrinu í smá tíma.. Svona hljóð eins og það er laust eða eitthvað, en ég er búinn að tékka á því en það er ekki laust, þetta hljóð kemur stundum þegar bíllinn er í gangi í Parki, og stundum þegar ég keyri hægt eða bakka hægt.

Veit einhver hvað þetta er? :oops:

PostPosted: Thu 07. Feb 2008 18:44
by lulex
pústhlíf ?

PostPosted: Thu 07. Feb 2008 19:16
by bjornvil
Athugaðu hvort einhver upphengja sé brotin, laus eða skökk þannig að pústið geti komið einhverstaðar við boddíið á bílnum. Ég lenti í svipuðu á Golfinum mínum, þá kom alltaf svona leiðindahljóð stundum, sérstaklega í starti og þegar álag var á mótornum. Pústið titraði þá mikið og slóst utan í bílinn. Þá var upphengja sem var svo ryðguð að hún hafði bognað aðeins og pústið lá eiginlega utan í bílnum.

PostPosted: Thu 07. Feb 2008 19:24
by Alpina
:? :? :?

PostPosted: Thu 07. Feb 2008 19:25
by demi
ég lenti í því á ferósu sem ég átti að pústið danglaði alltaf utan í slitna upphengju og þá heyrðist alltaf eitthvað skrýtið hljóð

PostPosted: Thu 07. Feb 2008 22:34
by JonHrafn
Lenti í þessu sama með 2002 bílinn minn,, 320d. Fann aldrei út hvað var laust eða hvar það lamdist í , setti hann á lyftu og alles :oops:

PostPosted: Thu 07. Feb 2008 22:44
by Mr_Gold
þetta er svona hjá mér og er það pústhlýfin sem liggur aðeins á pústinu.

PostPosted: Fri 08. Feb 2008 02:02
by Gunnar Hnefill
Sterkur möguleiki á því að þetta sé pústhlífinn þar sem pústskynjarinn er staðsettur

PostPosted: Fri 08. Feb 2008 03:41
by freysi
þetta er pottþétt pústhlífin, myndi láta tjékka á henni