Page 1 of 1

Euro mælaborð í USA bíl

PostPosted: Fri 25. Jan 2008 22:32
by xdriver
Örugglega aulaspurning.

Eru mælaborð (instrument cluster) PnP?

Með öðrum orðum, ef ég er með USA bíl, get ég einfaldlega skrúfað mælaborðið úr og sett í staðinn Euro mælaborð úr bíl með eins mótor og skiptingu og það virkar án þess að nokkuð annað þurfi að gera?

PostPosted: Fri 25. Jan 2008 23:38
by Mazi!
Hvernig BMW er þetta ? var allaveganna ekkert mál í e30 hjá mér

PostPosted: Sat 26. Jan 2008 01:07
by saemi
Ef þetta er X3 bíllinn sem þú ert að tala um (nýlegur) þá þarftu:

Panta nýtt mælaborð frá umboði og láta þá kóða nýja mælaborðið inn. Ef þú gerir það ekki, þá verður þú að nota kílómetrastöðuna á því notaða mælaborði sem þú ætlar að nota, því það er ekki hægt að kóða notuð mælaborð.

PostPosted: Sat 26. Jan 2008 13:38
by xdriver
Já þetta er sem sagt 2004 módel af X3 sem um ræðir.

Sá fyrir tilviljun notað mælaborð á ebay á ansi góðum kjörum miðað við nýtt og datt í hug að skipta. Hélt kannski að mælaborðið væri bara front end á akstursstöðuna, þ.e. að hinn eiginlegi mælir væri í einhverjum af tölvu modulum bílsins en ekki í mælaborðinu sjálfu.

Mílurnar pirra mig engan veginn nógu mikið til að ég tími að kaupa nýtt mælaborð svo ég læt þetta þá eiga sig.

Takk fyrir upplýsingarnar Sæmi.

Kjartan

PostPosted: Sat 26. Jan 2008 13:49
by IceDev
Ég býst nú við að innri hringurinn í hraðamælinum sýni kmh...ekki satt?

PostPosted: Sat 26. Jan 2008 13:58
by xdriver
IceDev wrote:Ég býst nú við að innri hringurinn í hraðamælinum sýni kmh...ekki satt?


Jú auðvitað er það þannig.

Ég er búinn að eiga þennan bíl í tvö og hálft ár og hef ekki látið þetta fara í taugarnar á mér hingað til. Neita því þó ekki að ég vildi frekar hafa eingöngu kmh en bæði mph og kmh. Datt því í hug að kanna málið þegar ég rakst á þennan mælagaur á ebay.