Page 1 of 1

Bremsuljós

PostPosted: Fri 11. Jan 2008 13:39
by Siggihp
Jæja, þá er bremsuljósið farið að loga. Hvert fer ég til að kaupa bremsudisk eða bremsuklossa? og hvað kostar það?
Eru þeir settir á á sama stað og maður kaupir þetta, eða fer maður eitthvað annað og hvað kostar það?

PostPosted: Fri 11. Jan 2008 14:12
by saemi
Bremsuljósið á alltaf að loga þegar þú stígur á bremsupedalann með bílinn í gangi :wink:

En svona að málinu sjálfu, þá væri mjög gott hjá þér að setja inn aðeins meiri upplýsingar ef þú ert að leita eftir svari. Það er svolítið mikill munur á þessu eftir tegundum bíls. Ég geng þá út frá því að þú sért að tala um BMW..... svo ég nefni ekki gerð.

PostPosted: Fri 11. Jan 2008 14:17
by Daníel
Hann á væntanlega við viðvörunarljósið sem gefur til kynna að klossar séu að klárast.

Myndi ráðleggja þér að kanna verð hjá umboðinu, oftar en ekki borgar sig að taka original hluti í bremsur.

PostPosted: Fri 11. Jan 2008 16:46
by JoeJoe
ef að ljósið er farið að loga þá þarftu að skipta um klossa og skynjara annaðhvort að framan eða aftan, það eru bara 2 skynjarar og þeir kosta ekki það mikið minnir 2500 stk.