Page 1 of 2

Skattar á vélum

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 16:34
by Jón Ragnar
Hvað þarf maður að borga í skatt af innfluttum mótor frá Ameríkuhrepp?

Re: Skattar á vélum

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 16:45
by arnibjorn
Tollurinn wrote:Það er 0.0% tollur, 15% vörugjald og 24.5% vsk. á bílvélum.
Þetta reiknast þannig út að þú tekur vöruverð + flutning + tryggingu og leggur saman og reiknar svo 15% vörugjald og leggur við og svo 24.5% vsk. ofan á allt saman.

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 16:48
by Jón Ragnar
Takk fyrir það :wink:

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 16:49
by arnibjorn
Jón Ragnar wrote:Takk fyrir það :wink:

Það var lítið.

Bara algjör tilviljun að ég sendi inn þessa fyrirspurn í gær á tollinn og þetta var svarið sem að ég fékk :)

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 16:55
by Jón Ragnar
Meinar.. hehe

verst að maður kann ekkert að reikna þetta svo út

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 16:59
by Aron Fridrik
(vöruverð + trygging + sendingakostnaður) x 1.15 x 1.245 = heildin

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 16:59
by IceDev
Jón Ragnar wrote:Meinar.. hehe

verst að maður kann ekkert að reikna þetta svo út

vöruverð + flutning + tryggingu og leggur saman og reiknar svo 15% vörugjald og leggur við og svo 24.5% vsk. ofan á allt

Mótor kostar segjum 100 krónur, flutningur 50 krónur og trygging 5 krónur

100 + 50 + 5 = 155

155 + 15% vörugjald = 178

178 + 24.5% vsk = 221

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 17:52
by srr
arnibjorn wrote:
Jón Ragnar wrote:Takk fyrir það :wink:

Það var lítið.

Bara algjör tilviljun að ég sendi inn þessa fyrirspurn í gær á tollinn og þetta var svarið sem að ég fékk :)

Og hvað ætlar þú að flytja inn? :naughty:

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 17:54
by bjahja
m40b18 8)

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 18:02
by Axel Jóhann
Ef það er satt þá hlýtur hún að vera forhlaðin. :lol:

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 19:20
by srr
bjahja wrote:m40b18 8)

Wow, það verður kraftur í þessu :lol: :lol:

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 19:20
by arnibjorn
srr wrote:
bjahja wrote:m40b18 8)

Wow, það verður kraftur í þessu :lol: :lol:

:wink: :twisted:

Re: Skattar á vélum

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 21:31
by iar
arnibjorn wrote:
Tollurinn wrote:Það er 0.0% tollur, 15% vörugjald og 24.5% vsk. á bílvélum.
Þetta reiknast þannig út að þú tekur vöruverð + flutning + tryggingu og leggur saman og reiknar svo 15% vörugjald og leggur við og svo 24.5% vsk. ofan á allt saman.

Er þetta semsagt óháð vélarstærð?

Re: Skattar á vélum

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 21:38
by arnibjorn
iar wrote:
arnibjorn wrote:
Tollurinn wrote:Það er 0.0% tollur, 15% vörugjald og 24.5% vsk. á bílvélum.
Þetta reiknast þannig út að þú tekur vöruverð + flutning + tryggingu og leggur saman og reiknar svo 15% vörugjald og leggur við og svo 24.5% vsk. ofan á allt saman.

Er þetta semsagt óháð vélarstærð?

Mér finnst það líklegt, ég tók ekki fram neina ákveðna vélarstærð og þetta er svarið sem að ég fékk.

Ég spurði bara um bílvélar in general. :)

Re: Skattar á vélum

PostPosted: Thu 10. Jan 2008 21:48
by gstuning

já.