Page 1 of 1

Miðstöðvar vesen

PostPosted: Sat 05. Jan 2008 21:10
by JoeJoe
Ég er búinn að vera í einhverju veseni með miðstöðina hjá mér. Málið er að þegar bíllinn er búinn að vera í gangi soldið lengi og alveg búinn að hitna þá kemur samt ískallt úr miðstöðinni þegar bíllinn er STOPP og ég er með hitann stiltann í botn, en svo þegar ég keyri af stað þá virkar hún alveg eðlilega :S

PostPosted: Sat 05. Jan 2008 21:25
by Alpina
1) Loft á kerfinu

2) vantar kælivökva

3) vatnslásinn farinn

PostPosted: Sat 05. Jan 2008 23:39
by jon mar
Alpina wrote:1) Loft á kerfinu

2) vantar kælivökva

3) vatnslásinn farinn


númer 1 & 2 eru frekar sennilegt


Ef bíllinn virðist halda vinnsluhita á ferð þá er 3 ansi ólíklegt.

PostPosted: Sun 06. Jan 2008 02:08
by JoeJoe
Alpina wrote:1) Loft á kerfinu

2) vantar kælivökva

3) vatnslásinn farinn


akkuru ætti bíllinn að blása KÖLDU lofti ef að það vantar kælivökva? ætti hann þá ekki að blása heitu lofti?

og ef það er loft í kerfinu meinaru þá að það sé loft í þessum leiðslum? btw. ég veit ekkert hvernig sona miðstöðvar unit virkar :P

PostPosted: Sun 06. Jan 2008 02:16
by jon mar
JoeJoe wrote:
Alpina wrote:1) Loft á kerfinu

2) vantar kælivökva

3) vatnslásinn farinn


akkuru ætti bíllinn að blása KÖLDU lofti ef að það vantar kælivökva? ætti hann þá ekki að blása heitu lofti?

og ef það er loft í kerfinu meinaru þá að það sé loft í þessum leiðslum? btw. ég veit ekkert hvernig sona miðstöðvar unit virkar :P


tjékkaðu hvort það vantar vatn á vatnskassann, bættu á ef vantar.

Hafðu bílinn í gangi og láttu hann ná vinnsluhita, hafðu miðstöðina líka á heitu og í gangi. Það er loftskrúfa ofan á vatnskassanum hjá þér, hliðiná átöppunarlokinu.

Þegar bíllinn er búinn að ná vinnsluhita og hringrás komin á kælivatnið, þá geturu losað þessa skrúfu til að hleypa lofti útaf kerfinu. Bætir svo á vatnskassann eftir þörfum.

Þarf að gera þetta nokkrum sinnum. En þetta er ef til vill lausnin á vandamálinu.

PostPosted: Mon 07. Jan 2008 12:22
by JoeJoe
Takk fyrir hjálpina en ég er ekki viss um að þetta hjálpi mér mikið þar sem að ég lenti útí skurð í gær á bílnum og hann er mikið skemmdur ekkert víst að ég fari á honum á götuna aftur :(

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 00:08
by Astijons
gott start í 2008

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 00:36
by Brútus
Er með sama vandamál með miðstöðina.
Takk fyrir góð svör.

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 08:38
by xzach
Lendi í því sama. Minn byrjar að blása ef ég set hann uppí svona 2k snúning. Man ekki hvort hann heldur svo áfram að blása heitu eftir það í hægagangi, en það er held að hann geri það.

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 18:41
by Neini
hjá mér blæs alltaf köld úr "andlits"opunum en fæturnar og rúðan blæs heitu

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 18:43
by Axel Jóhann
Neini wrote:hjá mér blæs alltaf köld úr "andlits"opunum en fæturnar og rúðan blæs heitu


Það er bara þannig í allavega eldri bimmunum. 8)

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 18:49
by Ibzen
Eru bílarnir hjá ykkur að ná kjörhita? Ég lenti í þessu með minn e36 320 en þá hitaði bílinn sig ekki alveg að kjörhita og hann blés alltaf köldu lofti, sama á hvaða stillingu maður fór. Það er einn stilling sem blæs bara köldu, þið verðið að athuga hvort að það sé vandamálið eða eitthvað meira. Í mínum bíl var það vatnslásin sem var farinn og lítið mál að skipta um hann.

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 19:12
by jon mar
ég er nú vanur því í mínum 2 bmw að þeir byrja að blása heitu löngu áður en þeir eru búnir að ná vinnsluhita, og þó er vatnslásinn pottþétt ónýtur í þessum "nýja"

PostPosted: Tue 08. Jan 2008 20:18
by Hannsi
Ég hefði nú haldið að líklegast væri "Circulation" dælan farin :!:

þ.e. dælan sem að sér um að hreyfa vatnið inn í hitaelementið meðan að bíllinn er kyrrstæður :!:

Annars kemur hitt auðvitað líka til greina ;)