Page 1 of 1

Vondur gangur

PostPosted: Wed 26. Dec 2007 23:00
by Hrannar
Ég er með smá vandamál. 323 bílinn minn er með
leiðindar gang, seinn í gang og kraftlaus. Mér finnst
eins og hann gangi ekki á öllum 6 cyl. Hefur einhver
lent í því að 1 eða fleiri háspennukefli hafið gefið sig.

PostPosted: Thu 27. Dec 2007 04:21
by IvanAnders
mjög ólíklegt að það sé farið háspennukefli hjá þér!
Finnst þér eins og hann sé að missa úr cylinder undir álagi (þungum gír, lítill hraði t.d.) eða gengur hann lausaganginn jafnvel illa?

vondur gangur

PostPosted: Thu 27. Dec 2007 12:39
by Hrannar
Mér finnst hann ekki ganga nógu smooth í lausagangi.
Hann er líka aflaus undir álagi.
Svo kemur líka bensínlykt þegar hann gegnur lausaganginn.

PostPosted: Thu 27. Dec 2007 13:47
by íbbi_
byrjaðu á að athuga með lambda sensorana(bank 1/1 1/2 og svo frms)

svo air flow..


þetta tvennt er sérlega lúnkið við að vera alltaf handónýtt í þýskum bílum

vondur gangur

PostPosted: Thu 27. Dec 2007 23:54
by Hrannar
Ok getið þið bent mér á hvar þessir skynjarar eru.

íbbi_ wrote:byrjaðu á að athuga með lambda sensorana(bank 1/1 1/2 og svo frms)

svo air flow..


þetta tvennt er sérlega lúnkið við að vera alltaf handónýtt í þýskum bílum

PostPosted: Fri 28. Dec 2007 00:21
by ReCkLeSs
minn var svipaður, ég fór með minn í Tækniþjónustu Bifreiða.
og þar kom í ljós að öll kertin voru handónýt og kertaþræðirnir og háspennuþráðurinn.
mæli með að láta stinga honum í tölvu hjá TB lang sniðugast þeir finna þetta strax.

PostPosted: Fri 28. Dec 2007 00:35
by IvanAnders
Í öllum bænum, bara ekki leyfa þeim í TB að setja champion kerti í bílinn!!!

PostPosted: Fri 28. Dec 2007 02:07
by UnnarÓ
IvanAnders wrote:Í öllum bænum, bara ekki leyfa þeim í TB að setja champion kerti í bílinn!!!

Hvernig kertum mælið þið gúrúar með?

PostPosted: Fri 28. Dec 2007 02:25
by IvanAnders
NGK til dæmis.

Nota bara það sem að BMW gefur upp!

Champion kerti eru rusl! og virka bara EKKI í BMW!

PostPosted: Fri 28. Dec 2007 02:32
by aronjarl
það er alveg líklegt að bíllinn hja sé ekkiað ganga öllum.!

þar með kraftminni..


látt hann ganga lausagang og tatu eitt kefli úr sambandi í einu...

þar me sérðu hver það er sem er ekki að sprengja...

fljótlegt að prufa það..