Page 1 of 1

Má bóna bíl 10 dögum eftir sprautun?

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 04:56
by Elnino
Ég er bæði búinn að heyra að það sé í lagi og að það sé ekki í lagi.


Vill fá svör 100% svör, ekkert "ég held" bull.


Kv. Elli :)

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 08:41
by einarornth
Ég ætla svo sem ekkert að halda neitt, en ef ég fengi mismunandi svör myndi ég nú frekar bíða aðeins lengur heldur en að bóna of snemma.

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 08:56
by Sezar
Daginn eftir er ok.

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 08:58
by Danni
Ég bónaði framstuðarann á 330D 2-3 dögum eftir að hann kom úr sprautun. Var allt í lagi með hann.

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 09:20
by jens
Var að láta sprauta jeppann minn smá og spurði einmitt að þessu og mér var sagt að eftir að þessi vatnslökk komu þá þarf ekki að bíða með að bóna, lakkið er klárt strax og það er þornar. Tek ekki ábyrð á þessu.

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 10:59
by Hannsi
Það er oft bónað strax sama dag og þetta er þornað á sprautuverkstæðum.

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 13:11
by ValliFudd
Sezar wrote:Daginn eftir er ok.

Best að hlusta á sprautarana :wink:
Allavega myndi ég gera það.. svo ég myndi taka þetta svar gilt og hundsa hin ;)

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 14:23
by Elnino
ValliFudd wrote:
Sezar wrote:Daginn eftir er ok.

Best að hlusta á sprautarana :wink:
Allavega myndi ég gera það.. svo ég myndi taka þetta svar gilt og hundsa hin ;)


Já hugsa að ég geri það bara, takk sezar :wink:

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 19:47
by trolli
smá OT útaf hverju var það aftur að þessi vatnslökk komu ?

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 19:59
by Sezar
trolli wrote:smá OT útaf hverju var það aftur að þessi vatnslökk komu ?

Afleiðingar af inngöngu Íslands í E-E-S :?
Umhverfisvænna.

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 20:07
by Tommi Camaro
Hannsi wrote:Það er oft bónað strax sama dag og þetta er þornað á sprautuverkstæðum.

harður gaur

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 20:33
by HPH
En tilhvers að bóna hann strax og hann er ný kominn úr sprautun?
Held að lakkið eigi alveg að vera hreint og glansandi þá.

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 20:42
by bjornvil
Er ekki málið bara að fá einhverja húð á lakkið, vernd þ.e.a.s.?

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 21:34
by Elnino
Tjah mig langaði bara að bóna hann, búinn að keyra á honum í viku núna og hann er orðin doldið skítugur.

Hringdi annars í verkstæðið sem sá um sprautunina og hann ráðlagði mér að bíða með þetta í 2-3 vikur í viðbót.

PostPosted: Tue 18. Dec 2007 22:00
by Sezar
Elnino wrote:Tjah mig langaði bara að bóna hann, búinn að keyra á honum í viku núna og hann er orðin doldið skítugur.

Hringdi annars í verkstæðið sem sá um sprautunina og hann ráðlagði mér að bíða með þetta í 2-3 vikur í viðbót.


:shock: :shock: :shock:
Gleymdi hann að setja herði í lakkið :lol: