Page 1 of 1

Rúðuþurkuvandamál

PostPosted: Tue 11. Dec 2007 19:28
by Dortzi
Er með 318 e36 og allt í einu virkaði bara rúðuþurkunar í hraðasta en ekki neinu öðrum stigum, og það datt líka út rúðupissið (kemur ekkert rúðupiss þótt að dótið sé fullt) og það var allt í lagi í morgun með þetta, fór í bílinn eftir vinnu og þá var þetta vandamál komið upp.

Veit einhver hvað gæti verið að, frekar vont að hafa þetta sona þegar það er sona mikill rigning.

EINHVER :(

PostPosted: Tue 11. Dec 2007 20:13
by Axel Jóhann
Rúðuþurrku relay, kostar um 6500kr i bogl, það er þetta sem er að, ég var í sama veseni hjá mér, lagaðist allt við nýtt relay.

PostPosted: Tue 11. Dec 2007 20:26
by Dortzi
Þakka fyrir skjótt svar ;)

PostPosted: Tue 11. Dec 2007 21:59
by flatbeat
Muna líka að athuga uppí vöku hvort það sé bíll með heilu svona relay. Mig vantaði relay fyrir dagljósabúnað og viti menn, var eitt heilt uppí vöku :D