kveikjuvandamál
er með m30b35 vél og málið er að vélin fær ekki neista, ég keypti nýtt lok, hamar, þræði og svo eru frekar ný kerti, en málið er að það kemur spenna frá háspennukeflinu í lokið og í þræðina en kertið sjálft neistar ekki, hef prufað að taka það úr og halda því við jörð og sjá hvort eitthvað komi en ekkert gerist, þannig er einhver með síðu um upplýsingar um hve há spennan á að vera uppúr keflinu og líka hvað forvafið og eftirvafið á að vera eða veit þetta bara einhver. Ég er reyndar með háspennukefli úr m30b28 ætti ekki að skipta miklu máli.