Page 1 of 2

E36 turbo - pælingar

PostPosted: Wed 05. Dec 2007 16:46
by Rednex
Sælir

Ég er hérna í prófalestrinum að láta mig dreyma. Ég á E36 318 sem er frekar latur. Hafa margir verið að turbo-væða bílana sína hérna á klakanum ?

Svo er málið. Á þessum mótor, alveg stock, hvað væri óhætt að blása inn á hann? 6psi ? prófa bara þangað til hann gefst upp :P Þá hefði maður afsökun til að skella sér í 325/8 mótorinn.

Held samt að hagstæðasta og þægilegasta lausnin sé að fara strax í öflugri mótor og sjá hvort það væri bara ekki nóg í bili. Það væri samt gaman að heyra frá ef einhverjir hafa verið að leika sér að þessu

PostPosted: Wed 05. Dec 2007 16:50
by arnibjorn
Þessi hérna var að spá í að turbó-a E36 316i...

Getur bara lesið hvað mönnum fannst um það :wink:

http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... ight=turbo

Hann endaði svo á því að selja bílinn og fá sér 325i

PostPosted: Wed 05. Dec 2007 16:59
by Aron Fridrik
ef þú átt pening og tíma.. go for it..

en það er auðveldara að kaupa sér bara 325i eða 328i..

PostPosted: Wed 05. Dec 2007 17:12
by íbbi_
ef þú átt tíma og peninga.. keyptu þér aflmeiri bíl

ef þú (insert any word at all) keyptu þér aflmeiri bíl


það koma einhevrjir hérna og eru ósammála, en aldrie mun ég lifandi samþykja að það sé eitthvað vit í að vera standa í þessu fyrir 318 bíl,þú myndir enda með bíl sem er búið að kasta fullt af pening í, engin hestöfl og færð ekki krónu til baka

PostPosted: Wed 05. Dec 2007 17:19
by gunnar
Sammála Íbba,

Túrbó eru ekkert ókeypis hestöfl, sérstaklega ekki á íslandi.. túrbínur eru dýrar, erfitt að fá manifold(verður að fá það að utan sjálfsagt) nema þú finnur það úr díselbíl ef það passar.

Þannig já, þetta kostar of mikið til að þetta borgi sig, svona verkefni vinda alltaf upp á sig..

Þegar mótor er orðinn betri, þá vill maður betri fjöðrun og svona byrjar snjóboltinn að rúlla og á endanum er veskið tómt :lol: (held að allir meðlimir kannist við þetta)

PostPosted: Wed 05. Dec 2007 17:30
by Aron Fridrik
þú gætir líka fundið tjónaðan 325 og svappað úr honum.. ég var allavegana kominn með peningana í hendurnar og ætlaði austur að kaupa tjónabíl þegar ég var að spá í þessu..


fann svo bara minn bíl á bílasölur.is og keypti hann frekar fyrst að hann tók minn upp í..

PostPosted: Wed 05. Dec 2007 19:11
by Rednex
Málið er að ég á túrbínu í alveg nógu góðu standi fyrir þennan bíl, held samt að hún sé heldur stór fyrir þetta, passaði ábyggilega fínt fyrir 3.0L vél. Væri ekki annars bara hægt að redda sér túrbínu úr Subaru eða Saab t.d. ?

Ég hafði nú hugsað mér að sjóða púst og soggreinarnar sjálfur, bara þannig að þetta virkar temmilega. Það sem ég hef áhyggjur af er tölvuvesenið, hef ekkert komið nálægt því að "mappa" tölvur. Svo þyrfti maður að fá sér nýja spíssa og jafnvel eldsneytisdælu. Myndi geyma það að fá mér nýja knastása.

En eins og ég sagði, þá er gaman að láta sig dreyma um bimman sinn þegar ég ætti að vera að læra íslensku eða sögu :wink:

PostPosted: Wed 05. Dec 2007 19:25
by Axel Jóhann
Mitt ráð er að ef þú getur gert svona mest sjálfur og átt túrbínu og kemst í græjur til að smíða það sem þarf, sakar ekki að prufa.

PostPosted: Wed 05. Dec 2007 19:47
by gstuning
Þessar pælingar enda HÉR.

Eyddu ekki einni auka mínútu í að ætla að túrbóvæða 1.8 E36 bimmann þinn.

PostPosted: Wed 05. Dec 2007 22:48
by Alpina
gstuning wrote:Þessar pælingar enda HÉR.

Eyddu ekki einni auka mínútu í að ætla að túrbóvæða 1.8 E36 bimmann þinn.


hehe

PostPosted: Thu 06. Dec 2007 20:36
by Rednex
Nú er ég aðeins búinn að lesa mér til

Flestir virðast vera að turbo-a m44 eða 42 vélarna. Samkvæmt wikipedia er ég með m43 vélina

Nú spyr ég. Hver er munurinn á þessum vélum ? m42 vélin framleiðir rétt undir 140hp en mín um 115hp. Er það bara heddið ?

Einnig las ég að m42 er með þrykkta stimpla, er það rétt og m43 vélin það líka ?

PostPosted: Thu 06. Dec 2007 20:45
by bjahja
Ertu á 318is?

PostPosted: Thu 06. Dec 2007 20:48
by Rednex
nei, 318i

PostPosted: Thu 06. Dec 2007 21:12
by bjahja
Djöfull er ég farinn að lesa pósta illa, mér fannst þú sega að þú værir með m42 :? :lol:

PostPosted: Fri 07. Dec 2007 20:31
by Rednex
Þessi hérna er hress 8)

E36 318is - Turbo