Ég er strand núna útaf þessu.
Ég ræsi vélina eðlilega, hún gengur í 1 sek, spólvarnarljósið blikkar og steindeyr á vélinni. Í kyrrstöðu að sjálfsögðu.
Hefur einhver reynt svipað?
Auðvitað heldur maður að spólvörnin sé að misskilja eitthvað.
Þetta er alveg bölvað. Reyndar er hægt að halda vélinni í einhverjum gangi, með prumpi og ógangi, á 2000 snún, en það gerir maður ekki.
kv ÞH
