Page 1 of 1

Vírar

PostPosted: Sun 02. Dec 2007 21:57
by hjaltib
jæja ætla að athuga hvort einhver viti þetta eða hvort einhver geti athugað þetta í sínum bíl.

en málið er að ég skipti um vél í sexunni minni og nýja vélin er með motronic systemi ekki gamla vélin og það eru þrír vírar rétt hjá mótorheilannum/tölvunni, þetta er svartur, grænn og hvítur vírar ef þeir eru ekki tengdir gerist ekkert og þar sem gamla vélin var ekki motronic er ekkert plögg á móti, ég hef verið að skoða teikningar af þessu og ég er ekki alveg með á hreinu hvert þessir vírar eiga að fara, held samt að svarti eigi að fara í snúningshraðamælinn, en ég veit ekkert hvert hinir eiga að fara, þannig hefur einhver staðið í þessu og gæti sagt mér hvert þeir eiga að fara.

hvíti vírinn er bara beint úr mótorheilannum, en svarti fer á háspennukeflið sem skýrir að hann eigi að fara í snúningshraðamælinn, og græni stjórnar realyi sem er nálægt tölvuheilannum.

og hérna er mynd af þessum svakalegum vírum.

Image

PostPosted: Mon 03. Dec 2007 00:22
by maxel
ég skil þetta varla, en á hann ekki að vera í vélarsalnum... lookar skítugur

PostPosted: Mon 03. Dec 2007 10:15
by saemi
maxel wrote:ég skil þetta varla, en á hann ekki að vera í vélarsalnum... lookar skítugur


Ó nei.

Þeir sem vita EKKERT hvað þetta er ættu bara að sleppa því að commenta :lol:

Þetta plögg á að vera þarna og það á að vera plögg á móti þegar bíllinn er með motronic vél... sem þessi er ekki original með.

PostPosted: Mon 03. Dec 2007 14:47
by gstuning
Ég veit að svarti er snúningshraða mælirinn :)

myndi giska á að hinir eru eyðslan og 12v í tölvuna,

PostPosted: Mon 03. Dec 2007 15:17
by hjaltib
þetta er komið held ég alveg örugglega hann fær allavega bensín á sig og það kemur straumur úr háspennukeflinu en hann fór ekki í gang, þannig ég opnaði kveikjulokið og sýnist hamarinn vera of stuttur eða lokið vitlaust sem er skrítið því þetta er allt nýtt eða straumurinn/spennan stoppar allavega í lokinu fer ekki í þræðina.

er ekki kveikjuröðin á ventlalokinu rétt hjá olíulokinu? minnir að hún sé 154623 eða 152346 man ekki hvað stóð getur þetta ekki staðist.

PostPosted: Mon 03. Dec 2007 15:37
by gstuning
1-5-3-6-2-4