Page 1 of 2
Bensíneyðsla á 540

Posted:
Wed 21. Nov 2007 12:04
by Þórólfur
Sælir
Er að velta því fyrir mér að skipta út 528 '00 fyrir 540 '02 og var að velta því fyrir mér hversu miklu meira þessir bílar eyða.
528 hefur verið að eyða 10-10,5 innanbæjar ef ég keyri eins og maður.
Einhverjir með reynslu á þessu?

Posted:
Wed 21. Nov 2007 12:12
by skaripuki
whaaaaaat 10 lítrar innanbæjar ??? 528 ??? ég er með 520 og hann er í 13-14,,, hef oft verið í 540 og keyrt þá marga,, var með einn 549 2002 bíl og hann var á milli 16-18 lítrum í normal keyrslu,, gefið í inná milli svosem en samt bara normal keyrsla

Posted:
Wed 21. Nov 2007 12:19
by Berteh
Minn 328i er að eyða svona 10-11 Innanbæjar þannig mér finnst þetta ágætis tölur hjá þér á stærri og þyngri bíl


Posted:
Wed 21. Nov 2007 12:56
by Svezel
skaripuki wrote:whaaaaaat 10 lítrar innanbæjar ??? 528 ??? ég er með 520 og hann er í 13-14,,, hef oft verið í 540 og keyrt þá marga,, var með einn 549 2002 bíl og hann var á milli 16-18 lítrum í normal keyrslu,, gefið í inná milli svosem en samt bara normal keyrsla
520 er alltof máttlaus miðað við þyngd og eyðir því miklu (sérstaklega miðað við afl). átti e39 520 og hann var alltaf í ~13

Posted:
Wed 21. Nov 2007 13:09
by jens
Ég hef heyrt að að þessir 540i bílar séu að eyða svakalega, sérstaklega upp á Hellisheiði


Posted:
Wed 21. Nov 2007 13:58
by Hannsi
skaripuki wrote:whaaaaaat 10 lítrar innanbæjar ??? 528 ??? ég er með 520 og hann er í 13-14,,, hef oft verið í 540 og keyrt þá marga,, var með einn 549 2002 bíl og hann var á milli 16-18 lítrum í normal keyrslu,, gefið í inná milli svosem en samt bara normal keyrsla
wtf
minn er í 14-15


Posted:
Wed 21. Nov 2007 14:04
by íbbi_
mín reynsla af 540 er sona 16-18

Posted:
Wed 21. Nov 2007 14:06
by Hannsi
kannski það sé léttara hlutfall sem að hjálpar mínum að eyða minna.

Posted:
Wed 21. Nov 2007 14:09
by basten
15-16 ltr/100 er ekki óeðlilegt m.v. innanbæjarakstur

Posted:
Wed 21. Nov 2007 14:13
by zazou
jens wrote:Ég hef heyrt að að þessir 540i bílar séu að eyða svakalega, sérstaklega upp á Hellisheiði

Það er bara þegar Herr Alpina er að spyrna hálf bensínlaus við einhvern Camaró


Posted:
Wed 21. Nov 2007 14:29
by ///M
Mín reynsla af svona 540 er 17-20,,, séns að ná þessu í 16 ef maður er allveg geldur á gjöfinni

Posted:
Wed 21. Nov 2007 14:31
by Omar
Hannsi wrote:skaripuki wrote:whaaaaaat 10 lítrar innanbæjar ??? 528 ??? ég er með 520 og hann er í 13-14,,, hef oft verið í 540 og keyrt þá marga,, var með einn 549 2002 bíl og hann var á milli 16-18 lítrum í normal keyrslu,, gefið í inná milli svosem en samt bara normal keyrsla
wtf

minn er í 14-15

Er þetta ekki sökum þess að mikill akstur þinn er Reykjanesbrautin?

Posted:
Wed 21. Nov 2007 15:08
by íbbi_
///M wrote:Mín reynsla af svona 540 er 17-20,,, séns að ná þessu í 16 ef maður er allveg geldur á gjöfinni
nákvæmlega..
og til hevrs að kaupa sér 540 ef bensíneyðsla er stæðsti óttin? er þá ekki alveg eins gott að kaupa bara 520 þar sem maður ætlar sér hvortsem er að keyra hann eins og kryplingur?

Posted:
Wed 21. Nov 2007 15:12
by hlynurst
Tek undir eyðslutölurnar frá ///M.
En hinsvegar eru þessir bílar ekki að eyða neinu að ráði þegar komið er út á þjóðvegina. Minn eyddi t.d. í kringum 10L þegar ég fór rúntinn Reykjavík --> Hella --> Reykjavík.
Keyrði reyndar skynsamlega en það er ekkert mál að ná eyðslunni niður á langkeyrslu.

Posted:
Wed 21. Nov 2007 15:13
by Þórólfur
íbbi_ wrote:og til hevrs að kaupa sér 540 ef bensíneyðsla er stæðsti óttin? er þá ekki alveg eins gott að kaupa bara 520 þar sem maður ætlar sér hvortsem er að keyra hann eins og kryplingur?
Ég er ekkert hræddur við bensíneyðsluna. Þetta var bara forvitni og mig langaði að vita muninn á þessum tveimur vélum
Ef ég vildi minni eyðslu þá myndi ég ekki kaupa mér 520 þar sem hann virðist eyða töluvert meira heldur en 528
