Page 1 of 2
Vandamál með Rafmagn í E34

Posted:
Sun 18. Nov 2007 16:17
by Hannsi
Var að klára að kifta um vél í E34 og allt tengt og allt eins og það á að vera. En að parti til færbíllin ekkert rafmagn,
Ef það eru tengdir startkaplar kemur ljós í mælaborðið útvarpið fer í gang OBC tölvan, rúðuþurkur og hazard ljósinn. En mótorinn fær ekkert rafmagn ásammt stefnuljósum, aðal ljós og aðvörunarljós í mælaborði.
Hvað gæti vandamálið verið?
Þetta er E34 með M50

Posted:
Sun 18. Nov 2007 18:01
by srr
Startarinn/háspennukeflið rétt vírað?
Skemmd á vírunum að því?

Posted:
Sun 18. Nov 2007 18:03
by gstuning
Athugaðu hvort að plöggið sem tengir vélina við bílinn er með víranna á sama stað báðumeginn.
Og mældu spennuna á græna vírnum vélarmeginn, ef hann er ekki með rafmagn þá á vélin ekki að fá straum.

Posted:
Sun 18. Nov 2007 21:16
by Hannsi
srr wrote:Startarinn/háspennukeflið rétt vírað?
Skemmd á vírunum að því?
Jamm allt rétt vírað og M50 er með 6 háspennukefli sem þarf ekkert að spá í vírun

gstuning wrote:Athugaðu hvort að plöggið sem tengir vélina við bílinn er með víranna á sama stað báðumeginn.
Og mældu spennuna á græna vírnum vélarmeginn, ef hann er ekki með rafmagn þá á vélin ekki að fá straum.
Ætti ekki að þurfa að spá í því er það? Þar sem þetta er sama rafkerfi og var í bílnum.
Tékka á morgunn með spennuna.

Posted:
Sun 18. Nov 2007 21:41
by Tommi Camaro
srr wrote:Startarinn/háspennukeflið rétt vírað?
Skemmd á vírunum að því?
hannsi mundiru eftir að jarðtengja vélina . minnir að það sé bílstjórameginn hjá mótorpúðanum

Posted:
Sun 18. Nov 2007 22:02
by srr
Tommi Camaro wrote:srr wrote:Startarinn/háspennukeflið rétt vírað?
Skemmd á vírunum að því?
Sorry að ég þekki ekki nýrri vélar en M10/20/30


Posted:
Sun 18. Nov 2007 22:27
by Bjarki
srr wrote:Sorry að ég þekki ekki nýrri vélar en M10/20/30

Skúli er gömul sál


Posted:
Mon 19. Nov 2007 00:38
by saemi
athuga "öryggið við demparaturninn h/m, er í svörtu plaststykki á kaplinum á leið fram í húdd að aftan. Þetta er ekki venjulegt öryggi heldur málmplata.

Posted:
Mon 19. Nov 2007 07:56
by Hannsi
Tommi Camaro wrote:srr wrote:Startarinn/háspennukeflið rétt vírað?
Skemmd á vírunum að því?
hannsi mundiru eftir að jarðtengja vélina . minnir að það sé bílstjórameginn hjá mótorpúðanum
Eins og ég tók framm er ALLT tengt og eins og það á að vera

nema það að hann fær ekki rafmagn.
Tékka á því Sæmi


Posted:
Mon 19. Nov 2007 10:04
by Hannsi
saemi wrote:athuga "öryggið við demparaturninn h/m, er í svörtu plaststykki á kaplinum á leið fram í húdd að aftan. Þetta er ekki venjulegt öryggi heldur málmplata.
er og var ekki til staðar. H/M

Posted:
Mon 19. Nov 2007 10:11
by gstuning
Ertu búinn að mæla 12v á startara, alternator og spurning um að kippa coverinu af og mæla 12v á einu af keflunum.
Gerist EKKERT þegar þú reynir að starta?

Posted:
Mon 19. Nov 2007 11:00
by Hannsi
neibb það geris ekki neitt þegar reynt er að starta. einu sinni bensíndælan tekur ekki við sér.

Posted:
Mon 19. Nov 2007 18:01
by Alpina
Hannsi wrote:neibb það geris ekki neitt þegar reynt er að starta. einu sinni bensíndælan tekur ekki við sér.
Hefurðu talað við Landsvirkjun


Posted:
Mon 19. Nov 2007 18:05
by gstuning
Hannsi wrote:neibb það geris ekki neitt þegar reynt er að starta. einu sinni bensíndælan tekur ekki við sér.
þá er ertu líklega með dautt relay, athugaðu 12v á þeim fyrir vélina
helst rauðu víranna

Posted:
Wed 21. Nov 2007 07:53
by Hannsi
haha málið upplýst

Kjánalegast í heimi
