bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Startvandamál BMW 320d 2002 -Lausn komin
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=25731
Page 1 of 1

Author:  IngiSig [ Sun 18. Nov 2007 15:46 ]
Post subject:  Startvandamál BMW 320d 2002 -Lausn komin

Sælir,
Ég er með BMW320d 2002 ek 170þ. Nú hefur hann verið erfiður í gang 3svar sinnum. Fyrsta skiptið eftir að hafa staðið í 10 klst. Annað skipti var hann heitur og aðeins búið að vera dautt á honum í 10 mín. Bíllinn krankar vélinni en koðnar niður 1-2 sec seinna. Ég hef beðið í 5 mín og þá startar hann eðlilega. Þess á milli ríkur hann í gang. Ég er nýbúinn að skipta um olíu og síu. Reyndar hefur honum lítið verið ekið síðustu 2 vikur en þó næstum daglega OG það var frekar lítið á tanknum.
Ég fyllti tankinn áðan og bætti Diesel engine treatment frá STP á.

Getur þetta verið vegna raka í tanknum eða loft hafi komist inná olíverkið?

Author:  IngiSig [ Sun 18. Nov 2007 16:11 ]
Post subject: 

Eitt í viðbót eftir að hafa lesið um vélavandamál á 320d á spjallinu;
*Eftir að bílinn er kominn í gang eru engar gangtruflanir.
*Reykir ekki óeðlilega
*Hann hitar sig eðlilega og hefur alltaf gert
*kom til landsins f. 22 mánuðum og síðasti einn og hálfur vetur hefur hann gengið eðlilega.

Author:  Gunnar Örn [ Sun 18. Nov 2007 20:20 ]
Post subject: 

Útleiðsla í startaranum

Author:  IngiSig [ Sun 18. Nov 2007 21:19 ]
Post subject: 

Hann heldur áfram að starta þrátt fyrir að drepa á sér.

Author:  Tommi Camaro [ Sun 18. Nov 2007 21:43 ]
Post subject: 

Gunnar Örn wrote:
Útleiðsla í startaranum

](*,)

Author:  Dóri- [ Sun 18. Nov 2007 22:06 ]
Post subject: 

Hefur verið frost úti þegar þetta hefur skeð ?

Author:  Alpina [ Sun 18. Nov 2007 22:32 ]
Post subject: 

VÁ,,, margir slyngir hérna

á verkstæði með bílinn :wink:

Author:  IngiSig [ Sun 18. Nov 2007 23:11 ]
Post subject: 

Í eitt skiptið var rigning. Var búinn að vera keyra bílinn, stökk inn í verslun í 10 mín. Startaði ekki, tékkaði á olíunni, beið í 5 mín og þá startaði hann.
Síðan í gærkvöldi fór ég út að éta komum síðan út og þá startaði hann ekki. Þá var skítakuldi -3° og vindur. Reyndi nokkrum sinnum, ekkert gekk og síðan beið ég í 5 mín og þá var ekkert mál.

Búinn að skjótast á honum 4 sinnum í dag og ekkert vandamál ennþá.

Author:  IngiSig [ Wed 02. Jan 2008 21:16 ]
Post subject: 

Fór með bílinn í Tækniþjónustu Bifreiða eftir að þetta var búið að gerast af og til í 10 daga.
Bilanagreining; CAMSHAFT SENSOR - NO SIGNAL OUTPUT.
Þannig að STUNDUM í starti skynjaði sensorinn ekki að vélin væri að snúast þ.a.l. var engri olíu dælt inná mótorinn=ekkert start.

Vikubið eftir varahlut, hlutur+vinna= 17000kr

Author:  ömmudriver [ Wed 02. Jan 2008 21:44 ]
Post subject: 

IngiSig wrote:
Fór með bílinn í Tækniþjónustu Bifreiða eftir að þetta var búið að gerast af og til í 10 daga.
Bilanagreining; CAMSHAFT SENSOR - NO SIGNAL OUTPUT.
Þannig að STUNDUM í starti skynjaði sensorinn ekki að vélin væri að snúast þ.a.l. var engri olíu dælt inná mótorinn=ekkert start.

Vikubið eftir varahlut, hlutur+vinna= 17000kr


Ok góðar fréttir :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/