Page 1 of 1

Furðulegt vandamál

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 00:27
by Saxi
"Door open" birtist alltaf í mælaborðinu þrátt fyrir að hvergi sé opin hurð. Einnig get ég ekki læst bílnum, hann opnar sig sjálfkrafa um leið og ég reyni að læsa.

Hvað getur verið að?

Þetta er E34 525

Kveðja

Re: Furðulegt vandamál

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 00:29
by srr
Saxi wrote:"Door open" birtist alltaf í mælaborðinu þrátt fyrir að hvergi sé opin hurð. Einnig get ég ekki læst bílnum, hann opnar sig sjálfkrafa um leið og ég reyni að læsa.

Hvað getur verið að?

Þetta er E34 525

Kveðja

Bilaðir litlu skynjararnir sem skynja hvort hurðin sé opin eða ekki ?

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 00:31
by Saxi
Hvar finn ég þessa skynjara?

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 00:46
by Stanky
Saxi wrote:Hvar finn ég þessa skynjara?


Þeir eru staðsettir í vel flestum bílum í falsinu á hurðinni eða á hurðinni sjálfri (?) - geri ráð fyrir einhverstaðar svona fyrir miðju.

Á mínum bíl E30, er þetta svona lítið gúmmí typpi sem leggst saman ef hurðinni er lokað, hægt að ýta honum líka með puttunum.

kv,
Haukur

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 00:46
by srr
Saxi wrote:Hvar finn ég þessa skynjara?

Hmm, það eru oft svona litlir tittir sem hurðin ýtir á þegar hún lokast.
Ég veit ekki hvort þetta sé í E34, en er í mjög mörgum bílum.
Sama og skynjar hvort það eigi að kveikja inniljósið þegar hurðin opnast.

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 01:07
by saemi
þetta er í arminum á boddíinu sem læsingin læsir utan um. Pínulítill míkrósviss sem þú finnur þegar þú skoðar þetta nánar.