Page 1 of 1

Topplúga með lekanda "E39"

PostPosted: Mon 12. Nov 2007 01:14
by Wolf
Sælir,

Topplúgan lekur töluvert hjá mér, þetta er 1999 E39 bíll. Mér skilst að
líklegasta ástæðan fyrir þessu sé að dren rörin sem liggja niður hurðapóstana séu stífluð. Það er talað um að hugsanlega sé hægt að blása
rörin út og losa stífluna þannig. Ég finn reyndar hvergi nein göt hjá lúgunni, sem er kanski ekki skrítið ef gæinn sem var að tala um þetta á
M5board hefur rétt fyrir sér,, þ.e að það þurfi að rífa loftklæðninguna úr til að komast að þessu???

Það hljóta einhverjir að hafa lent í þessu? Öll ráð eru vel þegin, er ekkert
mjög spenntur fyrir að taka klæðninguna úr, eða er það kanski ekki eins
mikið vesen og mig grunar??

PostPosted: Mon 12. Nov 2007 09:15
by bjornvil
Þú þarft ekki að rífa klæðninguna úr. Ef þú opnar lúguna þá eru götin fremst vinstra og hægra megin. Ef þau eru ekki stífluð ættirðu að geta hellt vatni meðfram opinu og það lekur niður hjá framdekkjunum.

PostPosted: Mon 12. Nov 2007 20:04
by crashed
rétt eins og bjornvil seigir en ef niðurfals rörinn eru stífluð að aftan þá þarftu að rífa klæðninguna úr