Page 1 of 1
Læsingar og samlæsingar

Posted:
Tue 09. Oct 2007 19:11
by Brútus
Það er ekki hægt að nota ská (lyklaskrá) úr hurð sem er hægra megin og setja hana í hurð sem er vinstra megin ?
Er það nokkuð ?
Er með BMW e-36'96

Posted:
Tue 09. Oct 2007 19:49
by Bjarki
jájá það er hægt en þú þarft mögulega að taka alla pinnana úr og endurraða þeim í þá sem er bílstjóramegin.
Ef sú sem er bílstjóramegin er alveg ónýt þá gæti dugað að fá úr öðrum bíl sem er í lagi og raða pinnunum inn í þá skrá.
Semsagt pinnarnir í skránni speglast ekki. Sem er nokkuð augljóst því það er sami lykill h&vm!

Posted:
Tue 09. Oct 2007 20:36
by Brútus
Já . .verð að ná bara hurðarspjöldunum af. Getur ekki verið mikið vesen.
Skil samt ekki hvernig rúðuupphalarinn afturí er festur. Er kominn með annan sko en fæ hinn ekki til að losna.
Vill skipta um hann því að hann er skemmdur.

Posted:
Tue 09. Oct 2007 21:41
by Bjarki
Einfalt að ná hurðaspjöldunum af. Smá trikk að ná plastinu í kringum húninn af, þarft að lemja á járn sem færist þarna inni, svo hann losni. Tekur plasttappa úr í hliðinni á hurðinni til að komast í þetta, best að lýsa þar inn með ljósi. Erfitt að skýra í orðum.
Rúðuupphalarinn að aftan er losaður með því að smella miðjunni út. Einnig erfitt að skýra í orðum, en það er nóg að fara með skrúfujárn þarna á milli og þrýsta út.

Posted:
Wed 10. Oct 2007 14:07
by Brútus
Þakka kærlega , Finn engar myndir af þessu á google en ég fer í þetta einhverntímann með verkfæri.

Posted:
Thu 11. Oct 2007 15:05
by Brútus