Page 1 of 2

Bank frá ventlaloki

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 20:48
by Herra13
Þetta er '85 323i E30 með M20B23 mótor (framleiðsludags 03/84)

Hver er líklegasta ástæðan?
þ.e. það bankar hátt í því, að því er virðist á einum cylinder...

heyrði þetta fyrst þegar ég gangsetti bílinn í fyrradag, en þá vantaði c.a. líter af olíu á hann, og nú, þegar ég lagaði ganginn (leki á barka milli loftsíuboxins og innspýtingar) þá fékk hann að ganga í c.a. 5 mín, og þá byrjaði bankið aftur.

Ætli þetta sé fastur ventill, eða undirlyfta ?

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 20:55
by Einarsss
er þetta ekki týpíska ventla bankið? þyrftir að prófa opna ventla lokið og ventastilla, einnig ættir þá að geta tekið eftir einhverju óvenjulegu

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 20:58
by Herra13
þetta er frekar hávært nefnilega... ef ég tæki hamarinn og bankaði honum ofan sæmilega fast, þá myndi heyrast jafnmikið.

þetta hljómar einsog bara einn ventill :?

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 21:06
by Einarsss
Þá er bara að opna og skoða. Meira segja ég get opnað ventlalokið á m20 ;)

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 21:09
by Herra13
hehe já, það er næsta skref :)

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 21:41
by _Halli_
:lol:

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 21:42
by Hannsi
brotinn rokkerarmur giska ég á og hann er að skótast um undir ventlalokinnu. Það var allavega keisið þegar það koma bank hjá mér.

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 21:43
by Herra13
hahahaha, alveg við hæfi :D

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 21:45
by Herra13
jæja, ventlalokið komið af, og rockerarmarnir *virðast* í lagi við fyrstu sýn, er að fara að snúa þessu öllu og gá hvort það sé fastur ventill *andvarp*

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 21:46
by ömmudriver
_Halli_ wrote:http://www.youtube.com/watch?v=hJC_hyK2HEI :lol:


Helvíti gott atriði :lol:

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 21:47
by Einarsss
Hvaða bíll er þetta annars? væri gaman að fá info og myndir, held það séu mjög fáir e30 323 til á landinu

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 21:48
by Hannsi
einarsss wrote:Hvaða bíll er þetta annars? væri gaman að fá info og myndir, held það séu mjög fáir e30 323 til á landinu

Já satt.

Veit um einn E30 með M20B23 swappi en ekki heyrt um marga Orginal 323i

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 21:50
by Herra13
Svona lítur hann út, er ekki með fleiri myndir á netinu sem stendur :S
Image

Chassis number 9537810
Vehicle code 1171
Series E30
Model 323i
Body type coupe
Catalog model ECE
Production date 1984 / 03
Engine M20
Transmission Manual
Steering Left
Catalyzer NONE

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 21:51
by mattiorn
Það er allavega einn hérna á Akureyri, pre facelift 323ia

PostPosted: Fri 05. Oct 2007 21:53
by Hannsi
Lookar nokkuð vel að þessari einu mynd að dæma.

Eina sem ég verð þó að seigja er að þessi nýru passa ekki þótt allt sé silfrað
væri til í að sjá shadowline nýru við þessar silfruðu ristar