bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Aftengja dagljós? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=24687 |
Page 1 of 1 |
Author: | Zeus [ Tue 02. Oct 2007 19:43 ] |
Post subject: | Aftengja dagljós? |
Ég fór fyrst í Aðhald (held ég að það heiti) í Klettagörðunum þegar ég leysti bílinn út og fékk endurskoðun 10. Það var sett út á filmur og ljósabúnaðinn. Ég er búinn að rífa filmurnar úr og fór síðasta föstudag að reyna aftur að fá fulla skoðun. Og þar sem ég misskildi manninn algjörlega í fyrstu, þá hélt ég að hann hefði veriða að tala um annað. Ég fór í Frumherja í Reykjanesbæ síðasta föstudag. Og þá var mér sagt að ég fengi ekki fulla skoðun. Vegna þess að það er ''kana'' dagljós búnaður á bílnum. Það kviknar ljós að framan en ekki að aftan. Þetta er svona á mörgum ameríku bílum. Þeir væru ekki nógu sáttir við þetta og að ég fengi ekki fulla skoðun. Hann hafði séð þetta oft og þetta væri ekkert mál að redda. Hann sagði mér að skjótast í Skiptingu og biðja þá að aftengja þetta. Komst ekki þangað á föstudaginn en ég fór í gær. Þar komst ég að því að þeir gætu ekki gert þetta fyrir mig. Og að ég þyrfti helst að tala við B&L eða TB. Hringdi í TB í gær og þeir sögðu mér að fara í B&L. Hringdi í morgun í B&L og þar ræddi ég við einhvern starfsmann og hann sagðist þurfa að stofna mig í kerfinu og það gæti tekið smá tíma. Hann myndi hringja aftur seinna um daginn. Hann var ekkert búinn að reyna að hringja svo ég reyndi að ná aftur í hann. Komst að því að það var brjálað að gera og mikil veikindi á verkstæði. Reyndi oft að ná inn en ekkert tókst, bað svo um að skilja eftir skilaboð. Ég er í fríi á morgun í vinnunni og langar ofboðslega að reyna að klára þetta. Eða allavega redda þessu dagljósi. Var búinn að heyra að bíllinn væri settur í tölvu og þessu kippt út. Var líka búinn að heyra að það sé hægt að finna relay og aftengja þetta þannig. Ógeðslega langur texti um ekki neitt en getur einhver komið með góð ráð. Hringi auðvitað strax aftur í fyrramálið í B&L en tekur það ekki þokkalegann tíma að fá pantaðann tíma á verkstæði hjá þeim? Fyrsta reynslan mín á B&L og veit ekki hvað er eðlilegur biðtími á verkstæði. Vill losna við þessa endurskoðun helst á morgun en það er bjartsýni mín einungis ![]() EINHVER? ![]() |
Author: | Lindemann [ Tue 02. Oct 2007 19:51 ] |
Post subject: | |
sennilega er ekki hægt að gera þetta með góðu móti nema tengja við tölvu og breyta uppsetningunni þar.........í eldri og einfaldari bílum er þetta mun einfaldara. |
Author: | slapi [ Tue 02. Oct 2007 19:54 ] |
Post subject: | |
það þarf að tengja bílinn við tölvu og kóða þetta út. B&L er með óvenjustuttan biðtíma á verkstæði meðaðvið önnur umboð 2-3 vikur er óvenjulega lítið. En hringdu niðureftir í fyrramálið og skoðaðu hvort sé hægt að redda þessu meðan þú bíður. |
Author: | Zeus [ Tue 02. Oct 2007 20:04 ] |
Post subject: | |
slapi wrote: það þarf að tengja bílinn við tölvu og kóða þetta út.
B&L er með óvenjustuttan biðtíma á verkstæði meðaðvið önnur umboð 2-3 vikur er óvenjulega lítið. En hringdu niðureftir í fyrramálið og skoðaðu hvort sé hægt að redda þessu meðan þú bíður. Já það er einmitt það sem ég er að vona ![]() ![]() Ég hélt að TB gæti gert þetta. Eru þeir ekki með réttu tölvu í þetta? |
Author: | Lindemann [ Tue 02. Oct 2007 20:07 ] |
Post subject: | |
ég held að TB geti bara lesið af villukóða og svoleiðis, en ekki kóðað eða breytt uppsetningum í tölvunni. |
Author: | Zeus [ Wed 03. Oct 2007 11:26 ] |
Post subject: | |
Ég á pantaðann tíma hjá B&L 26. október. Fór svo í Frumherja að útskýra þetta vesen og fékk frest til 06.11.07 sem sagt Endurskoðun 11 ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |