Page 1 of 1

Suð, gnuð að aftan.

PostPosted: Tue 02. Oct 2007 18:32
by DABBI SIG
Sælir fræðingar,

Hef verið að taka eftir hljóði sem kemur í bílnum hjá mér (tegund sést í undirskrift) þetta er ssk bíll og þetta er þannig að þegar bíllinn er kominn á sæmilega ferð 60 km/klst eða ofar og á sléttu malbiki heyrist þetta best (þá heyrist ekki dekkjahljóð), þá heyrist svona suð í bílnum og ég er nokkuð viss að það komi aftan frá. Þetta er í raun hljóð eins og hjólalega sé farin og vildi athuga hvort menn hefðu einhverja skoðun á því að þetta væri eitthvað annað eða hvort þetta væri hjólalega...ætti maður ekki að finna örlítið slag í hjólinu þegar bíllinn er uppá lyftu ef þetta er hjólalegan.
Endilega kommentið á þetta.

PostPosted: Tue 02. Oct 2007 19:05
by BMW_Owner
hækkaðu bara í útvarpinu..Ekkert að fyrr en dekkið hrynur undan :lol:

PostPosted: Tue 02. Oct 2007 19:10
by DABBI SIG
Hahah það er rétt maður!!

En hinsvegar þar sem þetta er nú yndið mitt þessi bíll þá er allt gert fyirr hann til að bæta.

PostPosted: Tue 02. Oct 2007 19:23
by BMW_Owner
nei djók :wink: þú heyrir þegar hjólalegan er að fara það er svona gróft hljóð (þú heyrir það á öllum hröðum) en ef hún er svona "ný" byrjuð að skemmast þá ætti ekki að vera slag í henni þótt að hún sé skemmd ekki fyrr en seinna þegar hún er að éta sjálfan sig í sundur.
en þetta suð getur verið hvað sem er :wink: