bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
e39 ODBII og "íslensk" diesel-olía https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=24591 |
Page 1 of 4 |
Author: | Bjarki [ Thu 27. Sep 2007 23:25 ] |
Post subject: | e39 ODBII og "íslensk" diesel-olía |
Ég finn ekki odb II tengið í e39 bíl 06/2000. Veit einhver hvar það er að finna. Ég notaði bara tengið í húddinu en vil gjarnan finna hitt, þægilegra þegar maður er að keyra og lesa rauntímaupplýsingar. Hefur einhver reynslu af því hvort sú diesel olía sem seld er hér á íslandi sé lakari en sú olía er seld er erlendis. Lakari eða öðruvísi? Keypti 530d fyrir foreldra mína núna úti, hef ekið bílnum rúma 5þkm á seinustu 2 vikum án vandræða en núna þegar ég er kominn til Íslands og er búinn með 1,5 tank þá gengur bíllinn leiðinlegan lausagang, engar villur koma fram og öll gildi eru eðlileg. Í þýskalandi þá getur maður keypt venjulegt diesel og svo super/ultra diesel, er ekkert svoleiðis hér? |
Author: | Angelic0- [ Thu 27. Sep 2007 23:34 ] |
Post subject: | |
tók eftir þessu með E39 530d sem að frændi minn átti... hann var mjög grófur ef að olían á hann var tekin annarstaðar en á ESSO |
Author: | Tommi Camaro [ Thu 27. Sep 2007 23:36 ] |
Post subject: | |
litaða olían virkar best , V-power Diselbílanna |
Author: | Angelic0- [ Thu 27. Sep 2007 23:40 ] |
Post subject: | |
Tommi Camaro wrote: litaða olían virkar best , V-power Diselbílanna
RANGT ![]() Litaða olían hefur þann kvilla að stífla síurnar í BMW... þær eru "full" fínar í E39 530d ! |
Author: | Lindemann [ Thu 27. Sep 2007 23:41 ] |
Post subject: | |
spurning hvort að það hafi verið keypt díselolía á hann á einhverri bensínstöð þar sem er lítil sala? Það er alveg séns að þú hafir bara lent á lélegri olíu með raka í.....spurning um að prófa að skella ísvara á hann og taka aftur olíu á hann, einhversstaðar þar sem er mikil sala... |
Author: | HPH [ Thu 27. Sep 2007 23:44 ] |
Post subject: | Re: e39 ODBII og "íslensk" diesel-olía |
Bjarki wrote: Ég finn ekki odb II tengið í e39 bíl 06/2000. Veit einhver hvar það er að finna. Ég notaði bara tengið í húddinu en vil gjarnan finna hitt, þægilegra þegar maður er að keyra og lesa rauntímaupplýsingar.
Hefur einhver reynslu af því hvort sú diesel olía sem seld er hér á íslandi sé lakari en sú olía er seld er erlendis. Lakari eða öðruvísi? Keypti 530d fyrir foreldra mína núna úti, hef ekið bílnum rúma 5þkm á seinustu 2 vikum án vandræða en núna þegar ég er kominn til Íslands og er búinn með 1,5 tank þá gengur bíllinn leiðinlegan lausagang, engar villur koma fram og öll gildi eru eðlileg. Í þýskalandi þá getur maður keypt venjulegt diesel og svo super/ultra diesel, er ekkert svoleiðis hér? þegar ég vann á Olís spurði ég eitt sinn einhvern gaur hjá olíudreifingu sem er einhver Bigshot þar um hvort það væri einhver munur á eldsneiti milli fyrir tækja hann neitaði því og sagði að Ísland væri með topp eldsneiti en hann var ekki vissi með AO. |
Author: | Lindemann [ Thu 27. Sep 2007 23:59 ] |
Post subject: | |
já, það er ekkert að olíunni þegar hún kemur til landsins a.m.k. Eina hættan er að það getur komist raki í hana ef hún stendur lengi í tönkunum, og þá er voðinn vís. Það á að athuga olíuna á bensínstöðvunum reglulega, en miðað við mína reynslu þá vill það gleymast á mörgum stöðvum. |
Author: | gunnar [ Fri 28. Sep 2007 00:14 ] |
Post subject: | |
Ætli sé þá ekki best að taka olíu á stöðum eins og Essó upp á ártúni og öðrum traffík stöðum ? |
Author: | Sezar [ Fri 28. Sep 2007 00:31 ] |
Post subject: | |
Angelic0- wrote: Tommi Camaro wrote: litaða olían virkar best , V-power Diselbílanna RANGT ![]() Litaða olían hefur þann kvilla að stífla síurnar í BMW... þær eru "full" fínar í E39 530d ! Hvernig færðu þetta út ![]() |
Author: | Angelic0- [ Fri 28. Sep 2007 00:32 ] |
Post subject: | |
Sezar wrote: Angelic0- wrote: Tommi Camaro wrote: litaða olían virkar best , V-power Diselbílanna RANGT ![]() Litaða olían hefur þann kvilla að stífla síurnar í BMW... þær eru "full" fínar í E39 530d ! Hvernig færðu þetta út ![]() Prófuðum litaða olíu á 530d, keyrðum svoleiðis í heilan mánuð... þá var kominn truntugangur og máttleysi í bílinn... fórum með hann í TB... og fengum þessi tilsvör ![]() |
Author: | Bjarki [ Fri 28. Sep 2007 08:34 ] |
Post subject: | |
Lindemann wrote: spurning hvort að það hafi verið keypt díselolía á hann á einhverri bensínstöð þar sem er lítil sala? Það er alveg séns að þú hafir bara lent á lélegri olíu með raka í.....spurning um að prófa að skella ísvara á hann og taka aftur olíu á hann, einhversstaðar þar sem er mikil sala...
Fylltann fyrst á Egilsstöðum, sennilega ok ...en svo fyllti ég hann í Freysnesi.....þeir selja örugglega meira af olíu á vörubíla - er það á sömu tönkunum? Ætla að setja ísvara útí tankinn og fylla aftur á eftir. Þetta er góðar pælingar - mikilvægt atriði að fá góða olíu. |
Author: | Lindemann [ Fri 28. Sep 2007 08:49 ] |
Post subject: | |
það er dálítið misjafnt hvernig fyrirkomulagið er.... Þegar það eru sér vörubíladælur, þá er stundum líka sér tankar fyrir þær en það er samt ekki víst. |
Author: | Kull [ Fri 28. Sep 2007 09:57 ] |
Post subject: | |
Angelic0- wrote: Prófuðum litaða olíu á 530d, keyrðum svoleiðis í heilan mánuð... þá var kominn truntugangur og máttleysi í bílinn... fórum með hann í TB... og fengum þessi tilsvör
![]() Skil það nú varla, á þetta ekki að vera nákvæmlega sama olían nema bara litarefni bætt útí. Varla er þetta litarefni svona þykkt að það stífli síur. Var þessi sía ekki bara orðin ansi öldruð? |
Author: | Steini B [ Fri 28. Sep 2007 19:50 ] |
Post subject: | |
Það skipti engu máli hvar ég tók olíu á minn, hann var alltaf eins... |
Author: | Schulii [ Sat 29. Sep 2007 00:36 ] |
Post subject: | |
Ekkert vesen verið á mínum, skiptir engu hvar ég tek olíu! |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |