Page 1 of 3

BMW E30 M52B28 startvandræði ofl.

PostPosted: Thu 13. Sep 2007 22:28
by gunnar
Ég lenti í því um daginn að bíllinn hjá mér varð rafmagnslaus, var með kveikt á ljósunum of lengi og allt dautt.

Þar sem ég er á Akureyri þá var ég ekki með mína almennilegu kapla og fékk því lánaða einhverja olís kapla hjá einhverjum og þeir dugðu ekki til að starta bílnum, hann rétt snéri en það var ekki nóg.

Anyway, reddaði mér stærri köplum og ég var búinn að reyna nokkrum sinnum með hinum. En með stærri gaurunum þá gekk þetta loksins.

Ekkert merkilegt svo sem, en eftir þetta er bíllinn búinn að vera svolítið leiðinlegur í gang. Venjulega hrökk hann strax í gang og ég þurfti ekkert að gefa honum inn eða neitt.

Núna finnst mér eins og hann svona rétt "koki" í gang, þarf að gefa honum aðeins inn og mér finnst eins og hann sé ekki alveg fullur(geymirinn)..

Hvað gæti hafa skeð þegar ég gaf bílnum start? Gætu kertin hafa skemmst einhvað eða ?

Öll komment velkomin..


Ahh eitt sem mér datt annað í hug,

Útaf því bíllinn er með álblokk, þarf ég þá einhvern sérstakann frostlög? Er er þessi blái bara í góðu lagi?

PostPosted: Thu 13. Sep 2007 22:43
by crashed
hljómar eins og dæmið hjá mér var svo setti ég nýjan rafgeimi í bílinn hjá mér og allt fór að virka eðlilega eftir það. held að rafgeimirinn hjá þér sé bara búinn á því

PostPosted: Thu 13. Sep 2007 23:02
by gunnar
Ætli sé einhvert verkstæði hérna á akureyri sem gæti mælt geyminn fyrir mig ?

PostPosted: Thu 13. Sep 2007 23:44
by crashed
það eru sumar bensínstöðvar með svona græjur til að mæla geimana hér í rvk veit ég

PostPosted: Fri 14. Sep 2007 00:04
by xtract-
gunnar wrote:Ætli sé einhvert verkstæði hérna á akureyri sem gæti mælt geyminn fyrir mig ?


bílvirki í fjölnisgötu t.d.

PostPosted: Fri 14. Sep 2007 08:50
by jon mar
Við erum víst ekki enþá búinn að fá vatnsklósettin þannig ég held þú verðir að leita til húsavíkur með svona tæknileg vandamál.....

En þú færð held ég öflugustu geymana á lagernum í olís...... Bmw frostlög færðu á Bifreiðaverkstæði Bjarnhéðins uppí þorpi, en líklega er einhver annar frostlögur sem má nota, en hef heyrt að bmw lögurinn sé hreinlega ódýrari.

PostPosted: Fri 14. Sep 2007 08:51
by gunnar
Say what ? :lol:

PostPosted: Fri 14. Sep 2007 08:53
by jon mar
editaði smá :p

PostPosted: Fri 14. Sep 2007 08:57
by gunnar
Hvernig í anskotanum á ég að vita hvar uppi í þorpi er ?????? :lol:

Hvar er þetta nákvæmlega. Er ekki einhvað sem ég gæti þekkt þarna nálægt.

PostPosted: Fri 14. Sep 2007 10:39
by gunnar
Mig vantar samt enn að vita þetta með frostlögin, er í góðu lagi að nota gamla góða bláa frostloginn á þetta?

PostPosted: Fri 14. Sep 2007 10:40
by Eggert
Gleymdu því að vera að mæla geyminn... þetta er dót sem þolir illa að verða rafmagnslaust og þetta er bara ávísun á vandræði. Það borgar sig bara að kaupa nýjan og hafa þetta pottþétt.

Þó svo það sé kannski nóg rafmagn á honum þegar hann er mældur þýðir það ekki að hann sé í toppformi eftir að vera búinn að standa eftir nótt. Svo ekki sé líka minnst á hvernig þetta fer með alternator.. það er ekkert hollt fyrir hann að þurfa að hlaða upp hálftóman geymi á hverjum degi.
:wink:

PostPosted: Fri 14. Sep 2007 10:56
by crashed
eins og eggert seigir þá borgar sig að fá sér bara nýjan geimi og hvað varðar frostlöginn þá skyftir eingu máli hvað þú setur á bíllin

PostPosted: Fri 14. Sep 2007 10:56
by Kristjan
Þorpið er norðan glerár. Þetta var einusinni annar bæjarkjarni en svo óx hann saman við Akureyri sunnan glerár. Þessvegna held ég að þetta sé kallað þorpið.

Anyway, þegar þú keyrir inn í bæjinn þá er hringtorg, þar tekurðu fyrsta gat, beygir síðan til vinstri niður Austursíðu, þar er íbúðarhverfi á hægri hönd og iðnaðarhverfi á þá vinstri. Fyrst kemur frostagata, þar er skoðunnarstöðin, svo kemur Fjölnisgata, báðar þessar götur liggja í hring og Bjarnhéðinn er fyrsta húsið á hægri hönd ef þú tekur neðri afleggjarann.

http://ja.is/simaskra?q=Bjarnh%C3%A9%C3 ... 0#row46600

PostPosted: Fri 14. Sep 2007 12:34
by gunnar
Langar samt ekkert í nýjan geymi, er með orginal BMW geymi :lol: merktur og alles.

En ég rúlla þarna niður eftir á eftir og spjalla við þá.

PostPosted: Fri 14. Sep 2007 12:47
by Aron Andrew
crashed wrote:eins og eggert seigir þá borgar sig að fá sér bara nýjan geimi og hvað varðar frostlöginn þá skyftir eingu máli hvað þú setur á bíllin


JÚ það skiptir máli!

Bara BMW frostlög, hef séð hvernig annað dót hleypur í kekki!