Page 1 of 1

Græjur í e46

PostPosted: Wed 12. Sep 2007 23:47
by Xavant
Ég er nýkominn með ameríkutípu 325i e46 '02
Er búinn að vera velta því fyrir mér hvort það sé tengi fyrir Magnara
á orginal spilaranum og Ipod tengi, vona að einhver hérna geti gefið mér
heiðarlegt svar :) takk :)

PostPosted: Wed 12. Sep 2007 23:48
by Bjössi
á bak við klæðninguna vinstra megin í skottinu á að vera magnari, þannig hefur það allavega verið í þeim 3 e46 sem ég hef átt

PostPosted: Wed 12. Sep 2007 23:59
by Xavant
Hvað er það stór magnari? er hann nóg fyrir 12" keilu ??

PostPosted: Thu 13. Sep 2007 00:01
by Bjössi
ég þori ekki að fullyrða um það, en ég stórefa það

þó er ekki sér magnari aftan í öllum bílum, bara þeim sem eru ríkulegar útbúnir, þ.e.a.s með hi-fi kerfi eða harman-kardon

PostPosted: Thu 13. Sep 2007 08:47
by Einsii
Xavant wrote:Hvað er það stór magnari? er hann nóg fyrir 12" keilu ??

Þetta er magnari sem er bara fyrir hátalarana í bílnum.. Og ef þetta er eitthvað einsog í eldri bílunum þá er margfaldur crossover í þessum magnara og hvert hátalari (bassa, miðju og hátíðnihátalari) mér sér útgang.
Og nei þú setur ekki búmmbúmm keilu inn á þetta...

PostPosted: Thu 13. Sep 2007 18:24
by Xavant
en er þá hægt að tengja annann magnara og keilu í orginal græjurnar eða verð ég að mixa þetta framhjá þeim einhvernegin?

PostPosted: Thu 13. Sep 2007 20:03
by Einsii
Náttúrulega ísí ef þú ert með magnara fyrir keiluna sem tekur við kraftmögnuðu signali frá spilara...
Annars þekki ég bara ekki hvort það sé line out á orginal spilara í E46