Page 1 of 2
E39 M5 rafmagnslaus

Posted:
Fri 07. Sep 2007 22:52
by Sumarliði M5
Smá vesen,
bíllinn minn er rafmagnslaus, er að byggja mér sumarbústað í Öndverðarnesi. Var að slá upp á fullu í dag, með græjurnar í bílnum í botni, er með 2 x 1000 w bassabox sem sjúga gjörsamlega allt út af geyminum.
Þannig að ég spyr, ég vill helst ekki fá einhvern með startkapla hingað, hef heyrt að það geti eitthvað steikt tölvuna í þessum bílum. Þannig að, ég var að pæla, bíllinn stendur einmitt í slatta halla en vandamálið er að hann þarf að renna aftur á bak. Hvernig er það strákar, er hægt að þrykkja honum í gang í bakkgír niður brekku?
Með fyrirfram þökk,
með von um góð svör
Kv. Summi

Posted:
Fri 07. Sep 2007 22:55
by bimmer
Sé ekki af hverju það ætti ekki að ganga.
Góður fyrsti bíll BTW


Posted:
Fri 07. Sep 2007 22:55
by saemi
Það á ekki að vera neitt vandamál. Það getur hins vegar verið erfitt í möl, hann á til að draga hjólin þá.

Posted:
Fri 07. Sep 2007 23:46
by Sumarliði M5
Ok, takk takk strákar. Gott að ég gat reddað þessu sjálfur. Setti í hlutlausan og lét hann renna upp í svona 15 kmh og dúndraði svo í R-ið, rétt til getið hjá þér saemi, hann dró hjólin svolítið fyrst en drullaðist svo í gang og mikið djöfull var ég feginn.
Takk fyrir aðstoðina saemi og bimmer

Posted:
Fri 07. Sep 2007 23:56
by Lindemann
Það hefði nú samt verið betra fyrir kassann að setja strax í bakkgír og standa á kúplingunni þangað til bíllinn var kominn á skrið og sleppa þá kúplingunni. Það er alls ekki mjög gott að dúndra í gír......
manst það bara næst


Posted:
Sat 08. Sep 2007 00:06
by Sumarliði M5
He he, já klaufalega orðað hjá mér. Skiljanlegt að þú hafir misskilið mig. Ég semsagt "dúndraði" honum ekki í gír. Ég setti bara í R með kúplinguna niðri og sleppti svo....
Djöfull elska ég samt kraftinn í þessu kvikindi

Var að dúndra tveimur félögum mínum sem voru að hjálpa mér að slá upp heim í capatalið. Að stíga M5-inn upp kambana var betra en að ríða konunni minni, er að pæla í að dömpa henni enda hefur hún aldrei verið hrifin af bílnum....


Posted:
Sat 08. Sep 2007 00:19
by Lindemann
já ég skil þig....hún má nú vera helvíti góð til að vera tekin framyfir M5


Posted:
Sat 08. Sep 2007 04:54
by Steinieini

Posted:
Sat 08. Sep 2007 11:11
by bjornvil

Posted:
Sat 08. Sep 2007 12:12
by JonHrafn

Posted:
Sat 08. Sep 2007 16:48
by Aron M5
hvað er numerið á þessu 2002 M5 sem þu att??

Posted:
Sat 15. Sep 2007 22:33
by Sumarliði M5
aron m5 wrote:hvað er numerið á þessu 2002 M5 sem þu att??
Ég er nú bara ennþá með hann á þýskum númerum. Konan er skráð fyrir bílnum enda er hún með skráð lögheimili í DE, er ekki að meika að borga helvítis vörugjöld og allt þetta bévítans peningaplokk...

Posted:
Sun 16. Sep 2007 00:48
by bimmer
Sumarliði M5 wrote:aron m5 wrote:hvað er numerið á þessu 2002 M5 sem þu att??
Ég er nú bara ennþá með hann á þýskum númerum. Konan er skráð fyrir bílnum enda er hún með skráð lögheimili í DE, er ekki að meika að borga helvítis vörugjöld og allt þetta bévítans peningaplokk...
Hvað ætlarðu að hafa hann lengi á DE númerum?

Posted:
Sun 16. Sep 2007 01:13
by Sumarliði M5
bimmer wrote:Sumarliði M5 wrote:aron m5 wrote:hvað er numerið á þessu 2002 M5 sem þu att??
Ég er nú bara ennþá með hann á þýskum númerum. Konan er skráð fyrir bílnum enda er hún með skráð lögheimili í DE, er ekki að meika að borga helvítis vörugjöld og allt þetta bévítans peningaplokk...
Hvað ætlarðu að hafa hann lengi á DE númerum?
Ég fer árlega til DE og ég er pæla í að leggja númerin bara inn árlega, svo það líti út eins og hann sé bara á meginlandinu. Ég er engan veginn að fara að rúnka út þessum ógeðslegu íslensku gjöldum....

Posted:
Sun 16. Sep 2007 04:07
by Siggi H
koma allavega með myndir af þessari kerru..