Losa hurðarspjald í E46

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Losa hurðarspjald í E46

Postby thisman » Fri 07. Sep 2007 08:45

Veit einhver hvert best er að leita til að losa frá hurðarspjaldið í E46 til að komast að hátalaraleiðslunum? Hægri framhátalarnir í hurðinni detta út annað slagið og það nægir að banka örlítið í stærri hátalarann og þá hrökkva þeir í gang. Þannig væntanlega væri nóg að fara yfir kaplana og tryggja að þeir séu kyrfilega í sambandi.

Það eru þrjár ástæður fyrir því að ég fer ekki í þetta sjálfur: Þekkingarleysi, aðstöðuleysi og sú staðreynd að það er loftpúði í hurðinni sem ég vil sem minnst eiga við. Þannig ef einhver veit um einhvern sem væri til í að kippa þessu í liðinn fyrir mig fyrir sanngjarna greiðslu þá endilega látið vita.

Ef ekki þá er væntanlega best fyrir mig að láta þá hjá TB skoða þetta í leiðinni þar sem hann á tíma hjá þeim í næstu viku út af spíssamálum. Eru þeir nokkra stund að redda svona æfingum? Nenni bara ómögulega að panta tíma hjá umboði fyrir svona smotterý en ég vil bara hafa græjuna í 100% lagi.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests