Var að spá hvort ég ætti að reyna við í vetur að skipta um pakkdósir á vélinni og gírkassa en hef ekki hugmynd um hvernig ég á að framkvæma þetta.
Amk smitar gírkassinn olíu á pakkdós og ég þyrfti að skipta um hana fyrr eða seinna.
Þarf að taka vélina úr bílnum til að komast að þessu eða er hægt að skipta um þessa hluti með vélina í bílnum? grófarleiðbeiningar væru fínar svo ég geti dæmt um hvort ég ráði við verkefnið eða ekki.

