Þekkingarleysi á diesel - málið leyst!
Ég er á 2005 árgerð af BMW 320d (e46) sem er ekinn tæplega 120 þús og er með einhver leiðindi þegar honum er startað köldum - mjög grófur gangur fyrst um sinn og blár reykur. Eftir mínútu eða svo er hann hinsvegar orðinn ljúfur og fínn og ef ég starta honum aftur seinna samdægurs þá er það aldrei neitt mál. Þetta gerist bara þegar honum er startað á morgnana en þá hefur hann staðið í 10+ klukkustundir.
Hann fór til TB þar sem þeir skiptu um glóðarkerti en það hafði ekkert að segja. Hann fór einnig með hann í álestur til B&L og tölvan hjá þeim finnur ekkert að bílnum. Þeir mæltu með því að setja hreinsivökva út í díselolíuna og sjá hvort að það hafði eitthvað að segja.
Hann hefur nú verið á slíkri blöndu í nokkra daga en það er allavega ekki enn farið að skila árangri. Dettur einhverjum eitthvað í hug sem vert væri að skoða?
Nú hef ég ekki áður átt díselbíl en mig minnir einhvernveginn að á öðrum slíkum bílum sem ég hef keyrt þá hafi maður þurft að halda við lykilinn meðan gormurinn logaði í mælaborðinu og bíða eftir að hann slokknaði. Í þessum bíl þá kviknar á gorminum í sekúndu eða svo þegar maður setur rafmagnið á bílinn en síðan slokknar það á sama tíma og önnur ljós í mælaborðinu. Þegar maður snýr svo lyklinum lengra til að svissa á þá logar þetta ljós aldrei - á hvaða tímapunkti fer hann að hita upp olíuna? Er það þegar maður setur rafmagnið á bílinn eða er það þegar maður snýr lyklinum til að starta vélinni?
Verst að bæklingurinn með bílnum er á algjörlega óskiljanlegu tungumáli fyrir mig