Page 1 of 1

Gangtruflanir þegar hann hitnar.

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 17:32
by fart
Sælir strákar.

Ég fór með M3 í umboðið fyrir helgi og lét taka inspection, skipta um olíur á mótor, kassa og drifi, auk þess sem þeir skiptu um kertin.

Hann hefur bara verið notaður stuttar vegalengdir síðan og virkað fínt, en í gær og í dag fór hann að láta verulega illa þegar hann hitnar. Fyrst byrjar hann að ganga á 2000-3000 rpm og fretar ef maður gefur inn, svo deyr hann. Ef maður nær honum upp á snúning er krafturinn ógurlegur.

Hljómar fyrir mig eins og hann gangi "lean" þegar hann hitnar.

Mér datt í hug að þeir hafi sett röng kerti í hann, getur það verið?

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 17:35
by saemi
loftflæðiskynjarinn ekki í sambandi????

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 17:39
by aronjarl
gæti verið loftflæði skynjarinn

bílar ganga í svokölluðu ''open loop'' kaldir - rík blanda.

svo þegar þeir hitna þá tekur annað kerfi við.. gæti tengst loftfæðinema.


annars lesa af bara :)

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 18:23
by fart
Það er nýr loftflæðiskynjari í honum sem ég installaði fyrir c.a. mánuði síðan, en það er möguleiki að þeir hafi eitthvað hrært í þessu. Best að kíkja í húddið.

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 18:53
by fart
Loftflæðiskynjarinn er vel tengdur, því miður. Vonandi að hann sé ekki FUBAR þar sem að hann kostaði sitt.

PostPosted: Sat 01. Sep 2007 15:01
by fart
Var að koma til baka úr reisu og, fór í að taka eitt kerti úr til að skoða.

Myndir..

Image
Þau virka óvenju svört eftir aðeins uþb 100km akstur :? eða er það ekki.

Týpan er
Bosch BMW
Super R0 688
Y5DDC

Þetta eru s.s. réttu kertin...

I smell trouble..

PostPosted: Sat 01. Sep 2007 15:29
by gstuning
Kertið lítur mjög eðlilega út,

Ég smella vacuum leka,
Eftir að þú stappar hann þá hættir vacuum lekinn að trufla og því verður allt eðlilegt,

PostPosted: Sat 01. Sep 2007 17:52
by saemi
Kertið lítur eðlilega út myndi ég segja ...

PostPosted: Sat 01. Sep 2007 18:44
by fart
Hvernig lagar maður vacum leka? og hvernig kemur hann? Það er klárt mál að þetta kom eftir að hann var hjá BMW.

BTW ég tók öll kertin úr áðan og setti í aftur.. lét hann hitna og hann virtist vera í lagi :?

PostPosted: Sat 01. Sep 2007 19:14
by Bjarki
fart wrote:Hvernig lagar maður vacum leka? og hvernig kemur hann?


Lausar lekar slöngur, oft auðsjáanlegt. Hægt er að mæla vacuum með venjulegum mælum. Mælirinn gefur ákv. þekkt gildi í lausagangi/undir álagi ef allt er eðlilegt.
Til að leita að vacuum leka er gott að nota startspray, úða því á slöngur.

PostPosted: Sun 02. Sep 2007 18:47
by fart
líklega komið í lag.. :?

PostPosted: Sun 02. Sep 2007 19:33
by iar
fart wrote:líklega komið í lag.. :?


HÍL ?